Staðfestur dómur fyrir að skilja bolta eftir í leggöngum
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir tvítugum karlmanni sem var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hættubrot en maðurinn setti gúmmíbolta upp í leggöng stúlku og skildi hann þar eftir án hennar vitneskju. Þremur vikum síðar var boltinn fjarlægður með skurðaðgerð en stúlkan var þá komin með bólgur og alvarlega sýkingu.
Hæstiréttur hækkaði hins vegar skaðabætur sem manninum er gert að greiða stúlkunni úr 600 þúsund krónum í rúmar 807 þúsund krónur.
Fram kemur í dómnum, að pilturinn og stúlkan hittust í júlí í fyrra og fóru í kjölfarið heim til hennar og höfðu samfarir. Þau voru bæði drukkin. Pilturinn sagðist hafa teygt höndina niður á gólf og fundið þar boltann, sem hann setti síðan inn í leggöng stúlkunnar. Stúlkan sagðist hafa talið að boltinn væri eitthvað kynlífsleikfang, sem pilturinn hefði síðan tekið út.
Boltinn var sýndur í héraðsdómi en hann var tæpir 6 sentimetrar í þvermál. Læknir bar, að aðskotahlutur sem þessi í leggöngum geti valdið miklum móðurlífsbólgum og jafnvel dauða. Stúlkan hafi svarað meðferð mjög vel og muni ekki hafa varanlegar líkamlegar afleiðingar. Hann tók fram að stúlkan hefði verið mjög undrandi þegar hann fann boltann en hún hefði áttað sig fljótt á því hvenær þetta hefði gerst.
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumönnum við störf lífláti. Var háttsemi hans talin varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar var talið að líta bæri til þess að hótanirnar hefðu verið settar fram í ölæði og ekki væri ástæða til að ætla að sterkur ásetningur hefði búið þar að baki til að valda lögreglumönnunum ótta um líf sitt og heilbrigði.Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 16. desember 2008, Innlent Skildi bolta eftir í leggöngum konu
- Fimmtudagur, 4. mars 2010, Innlent Refsing kynferðisbrotamanns þyngd
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Kynferðisbrotadómur þyngdur í Hæstarétti
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent Braut gegn dótturdóttur sinni
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Fær bætur vegna gæsluvarðhalds
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































