Ánægðir ferðamenn í Reykjavík
mbl.is
Alls höfðu 91% erlendra ferðamanna í Reykjavík góða eða frábæra reynslu af borginni á liðnu sumri. 94% aðspurðra sögðust einnig myndu mæla með Reykjavík við aðra.
Segir Höfuðborgarstofa, að þetta sé betri árangur en nokkru sinni, samanborið við kannanir síðustu sumra en kannanir hófust árið 2004.
Þegar spurt er um þá afþreyingu sem gestir Reykjavíkur nýta sér kemur í ljós að 70% fóru á veitingahús og 57% versluðu, sem er með því hærra sem hefur mælst. 40% skoðuðu söfn. Þá fóru 15% fóru í dagsferð um Reykjavík og 34% í dagsferð frá Reykjavík. Hefur þetta hlutfall aldrei mælst hærra.
Í könnuninni voru settar fram nokkrar fullyrðingar sem gestirnir lögðu mat á. Í ljós kom að 91% voru sammála þeirri fullyrðingu að Reykjavík sé örugg borg, 86% telja að Reykjavík sé hrein borg og 76% voru sammála því að Reykjavík sé skapandi borg. Hafa þessar tölur aldrei mælst hærri yfir sumartímann.
Þá hefur aldrei hefur hærra hlutfall sumargesta verið sammála þeirri fullyrðingu, að í Reykjavík fáist mikið fyrir peninginn, eða 46%. Segir Höfuðborgarstofa, að fullvíst megi telja að veiking krónunnar árið 2008 og 2009 valdi þar mestu. Einnig megi leiða að því líkum, að almenn ánægja gesta og aukin aðsókn í afþreyingu tengist að einhverju leyti hagstæðu gengi krónunnar fyrir útlendinga.
Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar gerðu könnunkna fyrir Höfuðborgarstofu síðastliðið sumar, frá júní til ágúst og var úrtakið rúmlega 2000 erlendir ferðamenn sem voru á leið úr landi í Leifsstöð.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 26. nóvember 2008, Innlent Gestir Reykjavíkur aldrei ánægðari
- Mánudagur, 29. desember 2008, Innlent Þrjú söfn opin á nýjársdag
- Föstudagur, 6. ágúst 2010, Innlent Brottförum frá Leifsstöð fjölgar
- Föstudagur, 6. febrúar 2009, Innlent Brennisteinsvetnismengun við heilsuverndarmörk
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Innlent Ólafur: Könnunin ómarktæk
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli


































