Gaumur greiddi tekjuskatt af söluhagnaði
Fjárfestingarfélagið Gaumur segir að félagið hafi greitt tekjuskatt árið 2005 vegna ákvörðunar ríkisskattstjóra um tekjuviðbót vegna hagnaðar af sölu 25% hlutar í Bónus þegar Hagkaup voru keypt. Tekjuviðbót vegna viðskipta tengdum bréfum í Arcadia Group hafi hins vegar ekki leitt til skattgreiðslna vegna ákvæða skattalaga um frestun söluhagnaðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gaumi, sem send var eftir miðnættið í nótt. Tilkynningin er eftirfarandi:
Í tilefni af fréttaflutningi um niðurstöðu í dómsmáli Gaums gegn íslenska ríkinu er ástæða til að vekja athygli á því, að ríkið var dæmt til þess að greiða Gaumi ehf. kr. 2.500.000 í málskostnað. Samkvæmt lögum skal sá sem tapar dómsmáli greiða gagnaðila sínum málskostnað.
Einnig er rétt að eftirfarandi komi fram:
Með úrskurði ríkisskattstjóra hinn 30. desember 2004 voru opinber gjöld Gaums fyrir árin 1999-2003 endurákvörðuð. Meðal annars var ákvörðuð tekjuviðbót vegna meints hagnaðar af sölu 25% hlutar í Bónus við kaup á hlutabréfum í Hagkaupum, samtals að fjárhæð kr. 668.519.432 sem og tekjuviðbót vegna meintra tekna af skiptum á hlutum í A Holding og Baugi hf., samtals að fjárhæð kr. 1.227.208.745. Sú fjárhæð leiddi þó ekki til skattgreiðslna vegna ákvæða skattalaga um frestun söluhagnaðar. Á árinu 2005 greiddi Gaumur tekjuskatt vegna sölu 25% hlutar í Bónus í ríkissjóð. Það er því rangt sem komið hefur fram í fréttum að umræddar fjárhæðir hafi aldrei verið tekjufærðar af hálfu Gaums hf.
Gaumur taldi ákvörðun ríkisskattstjóra um þessa þætti haldna ýmsum annmörkum, bæði formlegum og efnislegum. Ákvörðunin var því kærð til yfirskattanefndar, sem staðfesti niðurstöðu ríkisskattstjóra.
Í framhaldinu taldi Gaumur rétt að fá endurskoðun dómstóla á meðferð málsins fyrir skattyfirvöldum. Krafa Gaums var sú að áðurnefndar tekjuviðbætur yrðu felldar úr gildi með dómi, en íslenska ríkið krafðist sýknu af kröfunni.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu í dag. Í dóminum er tekið undir sjónarmið Gaums um að ákvarðanir skattyfirvalda hafi verið haldnar annmörkum. Tekjuviðbót vegna meints hagnaðar af sölu 25% hlutar í Bónus við kaup á hlutabréfum í Hagkaupum er lækkuð úr 668.519.432 í kr. 174.809.492. Gaumur hefur því ofgreitt tekjuskatt af kr. 493.709.940. Héraðsdómur fellst hins vegar ekki á að ákvörðun skattyfirvalda um tekjuviðbót vegna meintra tekna af skiptum á hlutum í A Holding og Baugi hf. hafi verið haldin annmörkum. Af því leiðir að sú niðurstaða skattyfirvalda stendur óhögguð.



































