FH-ingar senda Hrafnkatli styrk í Kaplakrika í kvöld

FH-ingar ætla að hittast í Kaplakrika í kvöld til að sýna stuðning við Hrafnkel Kristjánsson. Hrafnkell, sem er íþróttafréttamaður á RÚV, er fyrrum leikmaður FH en hann slasaðist alvarlega í bílslysi í fyrradag.

Hrafnkell liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans og haldið sofandi í öndunarvél. FH-ingar hvetja alla sína liðsmenn, vini og aðra sem vilja sýna Hrafnkatli stuðning að mæta í Kaplakrika í kvöld klukkan 20.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert