Milljarður til Byggðastofnunar
Framlög til Byggðastofnunar verða hækkuð um einn milljarða og framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka um 1,2 milljarða. Þetta kemur fram í breytingatillögum meirihluta fjárlaganefndar við 3. umræðu um fjárlög.
Aukið fjármagn til Jöfnunarsjóðsins er til komið til að mæta hækkun á launakostnaði sveitarfélaga í kjölfarið á hækkun á tryggingagjaldi. Ástæða fyrir auknu framlagi til Byggðastofnunar er sú að eigið fé stofnunarinnar er nánast uppurið. Með því að leggja stofnuninni til einn milljarð vonast meirihluti fjárlaganefndar að hægt verði að koma eigin fjárhlutfalli stofnunarinnar upp í 10%.
Í endurskoðaðri tekjuáætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs verði 461,8 milljarðar, en það er hækkun um 3,1 milljarð frá því sem gert var ráð fyrir við 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið. Reiknað er með að tekjuskattur af útgreiddum séreignarsparnaði verði 700 milljónum hærri en áætlað var, tryggingagjald verði 900 milljónum hærra og virðisaukaskattur er áætlaður hækka um 1.600 milljónir. Hækkun tekjuáætlunar frumvarpsins leiðir til minni halla sem nemur um 2,9 milljörðum kr. Hallinn á ríkissjóði verður því 98,9 milljörðum króna.
Breytingartillögur meirihluta fjárlaganefndar auka útgjöld ríkissjóðs um 229,8 milljónir. Meðal þess sem nefndin leggur til er að hækka framlag til Landbúnaðarháskóla Íslands um 70 milljónir, hækka framlag til varasjóðs húsnæðismála vegna félagslegs húsnæðis sveitarfélaganna um 30 milljónir og framlag til umönnunarbóta um 200 milljónir.
Fjárlaganefnd ræddi um byggingu nýs Landspítala í ljósi bréfs sem nefndin fékk frá Ríkisendurskoðun. Nefndin telur nauðsynlegt að setja sérlög um byggingu spítalans vegna umfangs verksins.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Innlent Útgjöld hækka um 9 milljarða
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Innlent Bíó Paradís fær 10 milljónir
- Mánudagur, 6. desember 2010, Innlent Eigið fé Byggðastofnunar aukið um milljarð
- Miðvikudagur, 24. nóvember 2010, Innlent Útgjöld lækka um 5,4 milljarða
- Laugardagur, 13. nóvember 2010, Innlent Lánaði sparisjóðum án veða
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































