Rithöfundur og verkefnið Skólastoð hlutu félagshyggjuverðlaun
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Ofbeldi á Íslandi - á mannamáli, og verkefnið Skólastoð, fengu í dag félagshyggjuverðlaun Ungra jafnaðarmanna, en þau eru veitt þeim sem að mati UJ hafa stuðlað að betra samfélagi.
Fyrr í dag var send út fölsk fréttatilkynning á fjölmiðla í nafni Guðrúnar Ögmundsdóttur, en hún sat í dómnefnd. Hafði verið stofnað netfang í nafni hennar og úr því send tilkynning um að félagshyggjuverðlaunin færu að þessu sinni til Saving Iceland samtakanna, sem hefðu verið mikill áhrifavaldur á Samfylkinguna á þessu ári. Ekki er vitað hver stóð fyrir gabbinu, en skrifað var undir póstinn með nafni Guðrúnar.
Í rökstuðningi dómnefndar segir um Þórdísi Elvu að hún hljóti verðlaunin fyrir framlag sitt til umræðu um kynferðisofbeldi. „Bók hennar Ofbeldi á Íslandi – á mannamáli hefur vakið gríðarmikla athygli og opnað umræðuna um þennan málaflokk. Bók Þórdísar ber svo sannarlega nafn með rentu, hún er á mannamáli og nær einstaklega vel til lesandans. Kynferðisofbeldi er málaflokkur sem kemur öllum við og Ungir jafnaðarmenn vilja heiðra Þórdísi fyrir að bæta fleiri baráttumönnum gegn ofbeldi í hópinn."
„Alma Tryggvadóttir, Hildur Sunna Pálmadóttir, Íris Lind Sæmundsdóttir og Margrét Ágústa Sigurðardóttir hljóta verðlaunin fyrir verkefnið Skólastoð. Fréttir bárust af því í haust að margir foreldrar ættu í erfiðleikum með að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af skólagöngu barna þeirra. Þær stúlkur brugðust fljótt við og söfnuðu skólavarningi og námsbókum fyrir þessi börn og unglinga. Verkefnið gekk gríðarlega vel og safnaðist skóladót fyrir um 500 börn. Ungir jafnaðarmenn dást að frumkvæði þeirra og vilja því heiðra þær með þessum hætti. Verkefnið er dæmi um hvernig er hægt að sýna samfélagslega ábyrgð á erfiðum tímum," segir ennfremur um verkefnið Skólastoð.
Ásamt Guðrúnu sátu í dómnefndinni þau Anna Pála Sverrisdóttir og Felix Bergsson.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Mæðgin gáfu þingmönnum bók
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Kynbundið ofbeldi kostar tvo milljarða á ári
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent Jóhanna leiðir ljósagöngu á miðvikudag
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent Ljósagangan farin af stað
- Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, Innlent Bókmenntaverðlaun fyrir banka og jökla
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































