Gjafakortasala Borgarleikhússins aldrei meiri

Borgarleikhúsið.
Borgarleikhúsið. mbl.is

Aldrei hafa fleiri gjafakort í Borgarleikhúsið selst en nú í desember. Þar með er slegið met leikhússins frá því í fyrra. Þá hafa aldrei selst fleiri kort á einum degi en í gær en þá seldust nær 2500 gjafakort í leikhúsið, að því er fram kemur í tilkynningu frá leikhúsinu.

Fram kemur að 15.000 gjafakort hafi þegar selst í desember.

„Við höfum aldrei upplifað annað eins og gjafakortasöluna fyrir þessi jól og þó hef ég verið hér í leikhúsinu í nær tuttugu ár. Stemningin er einstök enda gestir okkar í sannkölluðu jólaskapi þegar þeir heimsækja okkur hér í miðasölunni. Hér hefur verið röð út úr dyrum alla síðustu viku og því höfum við fjölgað starfsfólki til að anna eftirspurn,“segir Guðrún Stefánsdóttir miðasölustjóri Borgarleikhússins, í tilkynninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert