Þriggja þrepa skattur um áramót

stækka

mbl.is/Golli

Þriggja þrepa tekjuskattkerfi tekið upp um áramót. Verður staðgreiðsluhlutfall skatta þá í þremur þrepum, 37,22%, 40,12% og 46,12% en inni í því er meðalútsvarshlutfall sveitarfélaga sem verður 13,12% á nýju ári.

Persónuafsláttur verður 44.205 krónur á mánuði og skattleysismörk 124 þúsund krónur. Þetta þýðir, að sögn fjármálaráðuneytisins, að skattgreiðslur einstaklings með allt að rúmlega 280 þúsund króna. mánaðarlaun eru lægri eða þær sömu fyrir og eftir áramót að teknu tilliti til 4% lífeyrissjóðsiðgjalds og 40,12% staðgreiðsluhlutfalls á tekjur umfram 200 þúsund króna á mánuði.

Skattþrepin skiptast þannig að af fyrstu 2,4 milljóna króna árstekjum einstaklings (þ.e. 200 þúsund króna á mánuði) er reiknaður 24,1% tekjuskattur auk útsvars. Af næstu 5,4 milljóna króna tekjum, (450 þúsund krónum á mánuði) er reiknaður 27% skattur og síðan í þriðja þrepi 33% skattur af árstekjum umfram 7,8 milljónir króna (650 þúsund krónur á mánuði) hjá einstaklingi.

Meðalútsvar á árinu 2010 verður samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarfélaga 13,12% í stað 13,1% á árinu 2009. Staðgreiðsluhlutfall ársins 2010 verður samkvæmt því þríþætt eftir fjárhæð tekna, þ.e. 37,22% á tekjur sem nema 200 þúsund og lægri á mánuði, 40,12% á tekjur yfir 200 og allt að 650 þúsund krónum. á mánuði og síðan 46,12% á tekjur umfram 650 þúsund krónur á mánuði hjá hverjum einstaklingi.

61 sveitarfélag með hámarksútsvar 

Sveitarfélögin geta, samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga, ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,28%. Af 77 sveitarfélögum leggja 61 á hámarksútsvar, þar af nýtir eitt þeirra sérstakt 10% álag sem þýðir að útsvarshlutfallið verður 14,61% og annað sérstakt 5% álag sem þýðir að útsvarshlutfallið verður 13,94%. Þrjú sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Ekkert sveitarfélag lækkar útsvarshlutfallið frá því sem var á árinu 2009 en sjö sveitarfélög hækka það.

Staðgreiðslan er bráðabirgðagreiðsla, en endanleg ákvörðun tekjuskatts og útsvars fer fram við álagningu opinberra gjalda hinn 1. ágúst ár hvert. Fjármálaráðuneytið segir, að engu að síður sé brýnt að afdráttur í staðgreiðslu sé með sem réttustum hætti svo ekki þurfi að koma til íþyngjandi leiðréttinga við álagningu opinberra gjalda. Til þess að það markmið náist þurfi launamaður að upplýsa launagreiðanda um það hvort hann starfi hjá fleiri en einum aðila þannig að unnt sé að beita réttu staðgreiðsluhlutfalli. Komi hins vegar í ljós að staðgreiðsla hafi verið vangreidd innan ársins getur launþegi greitt það sem á vantar til þess að komast hjá greiðslu álags sem að öðrum kosti er ákvarðað við álagningu.

Heimilt verður að skattleggja hluta tekna maka í miðþrepi í stað efsta þreps hafi tekjulægri makinn ekki nýtt miðþrepið að fullu, þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar sýnt þykir að heimild til slíkrar millifærslu hafi skapast geta samskattaðir aðilar óska eftir endurreikningi á þeirri staðgreiðslu sem innt hefur verið af hendi og jafnframt endurgreiðslu hennar reynist staðgreiðslan of há. Slík endurgreiðsla getur þó ekki komið til fyrr en á síðasta ársfjórðungi og aldrei numið lægri fjárhæð en 50 þúsund krónum eða hærri fjárhæð en 100 þúsund krónum.

Upplýsingasíða ríkisskattstjóra

Nánari upplýsingar um framangreindar breytingar og áhrif þeirra verður að finna á upplýsingasíðu ríkisskattstjóra fljótlega á nýju ári. Þar mun einstaklingum, launagreiðendum og öðrum gefast tækifæri á að kynna sér breytingarnar nánar, meðal annars með notkun á sérstakri reiknivél.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »
Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
Gisting á Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á rólegum og góðum stað á Akureyri. Sér inngangur...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...