Vefur RKÍ vegna flóða

Íbúar í Phang Nga héraði á Tælandi setja pappírsbáta á flot. stækka

Íbúar í Phang Nga héraði á Tælandi setja pappírsbáta á flot. Reuters

Rauði kross Íslands hefur sett upp sérstaka vefsíðu í tilefni af því að fimm ár eru liðin frá því að flóðbylgjan skall yfir í Asíu.  Þar er gerð grein fyrir í hvaða verkefni framlög Íslendinga fóru og rætt við nokkra af sendifulltrúunum sem störfuðu á svæðinu.

Þann 26. desember árið 2004, annan dag jóla, varð heimsbyggðin vitni að einum mestu hamförum sögunnar þegar flóðbylgja skall á fjölmörgum löndum í Asíu og austurströnd Afríku.  Mörg hundruð þúsund manns fórust, og milljónir manna í þessum löndum þurftu á tafarlausri neyðaraðstoð að halda.

Gífurleg samstaða Íslendinga eftir hamfarirnar í Asíu þann 26. desember 2004 kom strax í ljós - meðal annars fram í framlögum almennings, stjórnvalda og fyrirtækja til hjálparstarfs Rauða krossins.  Hjálparstarfið hófst hófst tafarlaust hjá sjálfboðaliðum Rauða krossins á hamfarasvæðunum, og alþjóðleg neyðaraðstoð var skipulögð innan nokkurra klukkustunda frá því flóðbylgjan reið yfir.  Það fé sem Rauða krossi Íslands var trúað fyrir af íslenskum almenningi nam samtals rúmlega 170 milljónum króna. Til viðbótar má telja vörur og þjónustu sem metin er á alls um níu milljónir króna.

Féð safnaðist að hluta á fyrstu dögunum eftir hamfarirnar og að hluta í sameiginlegri fjársöfnun helstu félagasamtaka sem komu að hjálparstarfi á flóðasvæðum, Neyðarhjálp úr norðri. Frá upphafi lagði Rauði kross Íslands mikla áherslu á að ráðstafa fénu í nánu samráði við Alþjóða Rauða krossinn og heimamenn sjálfa, einkum í þeim tveimur löndum sem urðu verst úti, Sri Lanka og Indónesíu.

Skipta má aðstoð Rauða kross Íslands í fjóra þætti: Neyðaraðstoð fyrstu vikur og mánuði, útvegun sendifulltrúa á hamfarasvæðið (alls 18 sendifulltrúar), stuðning við eftirlifendur og að lokum langtíma uppbyggingu sem enn er ekki að fullu lokið.

Rauði kross Íslands hefur sett upp sérstaka vefsíðu í tilefni af því að fimm ár eru liðin frá því að flóðbylgjan skall yfir.  Þar er gerð grein fyrir í hvaða verkefni framlög almennings, stjórnvalda og fyrirtækja fóru, og rætt við nokkra af sendifulltrúunum sem störfuðu í Aceh í Indónesíu og á Sri Lanka. Upplýsingarnar er að finna á vefslóðinni raudikrossinn.is/tsunami

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Keppnin fer fram í Hörpu.

Úrslitakvöldið hafið í Hörpu

20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafin í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppnisöngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »
Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti

Ögmundur Jónasson
16:46 Ögmundur Jónasson, innanríkis- og mannréttindaráðherra Íslands, segir það vel koma til greina að skoða með hvað hætti Ísland geti beint spjótum sínum að mannréttindabrotum í Aserbaídsjan í kjölfar Evróvisjón keppninnar. Meira »

Möguleikar nýju framboðanna

16:05 Væntanlega mun ýmislegt skýrast á næstunni frekar varðandi stefnur stjórnmálahreyfinganna og hvernig þær ætli sér að skipuleggja starfsemi sína fyrir næstu þingkosningar sem verða í síðasta lagi vorið 2013 eða eftir rúmt ár en gætu skollið á hvenær sem er. Meira »

Hvessir af suðri seint í kvöld

Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt.
17:16 Heldur hvessir af suðri í kvöld og hlýnar á landinu, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er spáð hríðarveðri fram á nótt, en slyddu og rigningu í byggð. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og mjög hvössum vindhviðum. Meira »

Ekki hika – hringdu til öryggis

Meðal þess sem var í boði, var að læra hvernig á að beita hjartahnoði.
16:46 Gagn og gaman, voru þau orð sem gestir í Smáralind höfðu um 112-daginn sem þar var haldinn í dag. Markmið dagsins var að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. En ekki síður voru viðbragðsaðilar með umfangsmiklar kynningu. Meira »

Enginn flótti af Y-lista

Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa og Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki.
16:04 Rannveig Ásgeirsdóttir, bæjarfulltrúi Y-lista í bæjarstjórn Kópavogs, segir það ekki rétt að nokkur fjöldi hafi sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að listinn myndaði meirihluta með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi á fimmtudaginn. Henni er aðeins kunnugt um að einn hafi sagt sig af listanum vegna þessa. Meira »

Iðnaðarmaður ræsti brunaboða

Kleppsspítali
15:57 Lögregla og slökkvilið voru kölluð að Kleppsspítala rétt fyrir hádegið í dag þegar brunaboði og innbrotsboði voru ræstir. Í ljós kom að iðnaðarmaður setti brunaboðann af stað með vinnu sinni og þegar hann reyndi að slökkva á honum ræsti hann óvart innbrotsboðann. Meira »

Börn grétu vegna útigangsmanna

Klambratún.
15:48 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að Klambratúni í dag þar sem útigangsmenn voru með ofstopa og ógnuðu fólki sem þar gekk um. Tilkynnandi sagði að börn hefðu orðið mjög skelfd og brostið í grát vegna þessa. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir hins vegar horfnir á braut. Meira »

Búðaþjófur ógnaði starfsmanni

Maðurinn reyndi að stela vörum úr Hagkaup.
15:54 Starfsfólk Hagkaupa í Skeifunni óskaði eftir aðstoð lögreglu höfuðborgarsvæðisins á öðrum tímanum í dag. Þar hafði karlmaður reynt að stela vörum og brást illa við afskiptum öryggisvarðar. Búðaþjófurinn sem ógnaði öryggisverðinum með skærum var handtekinn og bíður skýrslutöku. Meira »

Fangar reyna oft að ná í fíkniefni

Fangi fluttur fyrir dómara.
15:39 Tilvik þess að fangar reyni að nálgast fíkniefni þegar verið er að flytja þá á spítala, fyrir dóm eða til tannlæknis koma reglulega upp. Þetta sagði deildarstjóri á fangelsinu á Litla-Hrauni í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Því þurfi sífellt að endurskoða fangaflutninga. Meira »

Slökkt á meðan Kolaportið er opið

Kolaportið
15:26 Tollstjóri hyggst slökkva á eftirlitsmyndavélum á húsi embættisins við Tryggvagötu á meðan Kolaportið er opið. Þetta kemur fram í umsögn Persónuverndar um fyrirhugaða vöktun hússins. Meira »

Öskureið út í Pál Óskar

14:41 Ulker Gasanova sem fluttist til Íslands frá Aserbaídsjan árið 2001 með móður sinni, Sevil Gasanova, er ekki sátt við málflutning Páls Óskars vegna undirbúnings Evróvisjónkeppninar sem fer fram í Aserbaídsjan í ár. Meira »

„Stærstu verðlaunin eru heima“

Gísli Örn Gíslason, skyndhjálparmaður ársins 2011 og dóttir hans, Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
14:30 „Það hjálpaðist allt að á þessum degi. Það var röð tilviljana sem olli því að við vorum öll heima,“ segir Gísli Örn Gíslason, sem í dag var valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 af Rauða krossi Íslands. Hann bjargaði lífi 18 ára gamallar dóttur sinnar í fyrra. Meira »

Skjálftahrina við Grímsey

Kort af skjálftunum.
14:48 Jarðskjálftahrina varð úti fyrir Grímsey í morgun. Á vefsvæði Veðurstofu Íslands má sjá að hrinan hófst um klukkan níu í morgun og stóð til hádegis. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 stig, en einnig mældust skjálftar up á 2 stig og 1,9 og 1,7. Engir skjálftar hafa mælst eftir hádegið. Meira »

Fleiri vilja aukið íbúalýðræði

14:31 Áhugi á auknum tengslum kjósenda við fulltrúa sína hefur aukist mikið á sveitarstjórnarstiginu á umliðnum árum, og raunar einnig upp á það síðasta á landsmálastiginu. Í niðurstöðum könnunar sem unnin var fyrir innanríkisráðuneytið kemur fram að áhuginn sé heldur að aukast með stjórnmálamanna heldur en hitt. Meira »

Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
13:48 Fulltrúar sveitarstjórna sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, afþökkuðu boð til fundar í forsætisráðuneytinu sem halda átti 9. febrúar síðastliðinn. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Head skíði og Salomon skíðaskór
Ársgömul og mjög lítið notuð Head skíði 120 cm hvít með svörtum stöfum og með mj...
Polaris Fusion 2006 600 cc
Allur yfirfarinn. 121" x 15" x 36.mm, negling - Brúsgrind - Handahlífar. Með sna...
Rafstöðvar 5 kw diesel
Eigum á lager 5 kw diesel rafstöðvar á fínu verði. Einnig 2,8 kw bensin rafstöðv...
Yamaha Roadstar 1700 cc
2005 arg ekið 20þus milur hlaðið augabunaði verð 1490 þus uppl i sima 8981261...
 
Skuðrhjúkrunarfræðingur
Heilbrigðisþjónusta
Mynd af auglýsingu ...
Stúkan fjölnir
Félagsstarf
l FJÖLNIR 6012020719 I...
Aðalfundur sjálfstæðisfélögin í hafnarfirði

Sjálfstæðisfélögin íHafnarfirði og ful...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl...