Ágæt velta á fasteignamarkaði

Fasteignasala var ágæt í vikunni sem er að líða
Fasteignasala var ágæt í vikunni sem er að líða mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Alls var 57 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 18. desember til og með 24. desember. Þar af voru 40 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.506 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,4 milljónir króna.

Tvær eignir seldar á Suðurnesjum en sex á Akureyri

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 31 milljón króna og meðalupphæð á samning 15,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 6 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samningur um sérbýli og 3 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 181 milljón króna og meðalupphæð á samning 30,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 2 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 23 milljónir króna og meðalupphæð á samning 11,3 milljónir, að því er er segir á vef Fasteignaskrár Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert