Frjósemi í Móholti

mynd/bb.is

Íbúum við Móholt á Ísafirði fjölgaði um fjóra á árinu sem er að líða. Allt voru þetta drengir sem fæddust á árinu og þykir það sæta tíðindum í ekki stærri götu en Móholti, að fjögur börn fæðist á sama ári og af sama kyni. Tólf hús eru við götuna.

Stoltir foreldrar eru Hildur Halldórsdóttir og Guðjón Torfi Sigurðsson, Elín Hólm og Marteinn Svanbjörnsson, Harpa Grímsdóttir og Gunnar Páll Eydal og Tinna Hrund Hlynsdóttir og Hlynur Steinn Þorvaldsson.

Bæjarins besta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert