Fréttaskýring: Spara mætti 1.700 milljónir

Starfsemi sjúkrahúsanna á suðvesturhorni landsins er mismunandi og miklir möguleikar taldir á frekara samstarfi eða ... stækka

Starfsemi sjúkrahúsanna á suðvesturhorni landsins er mismunandi og miklir möguleikar taldir á frekara samstarfi eða flutningi verkefna á milli stofnana. Ávinningurinn er metinn í milljörðum króna. Ásdís Ásgeirsdóttir

Morgunblaðið eftir Björn Jóhann Björnsson

Með flutningi ákveðinna verkefna á milli Kragasjúkrahúsanna svonefndu og Landspítalans mætti spara árlega um 1.700 milljónir.

Um er er að ræða flutning á öllum skurðlækningum og fæðingar- og kvensjúkdómaþjónustu frá Kragasjúkrahúsunum til Landspítalans og einnig flutning á hluta legusjúklinga eftir bráðaaðgerðir á Landspítalanum til Kragasjúkrahúsanna. Með flutningi fleiri verkefna mætti ná fram enn meiri ábata í krónum talið, eins og varðandi meltingarrannsóknir, grindarbotnsmeðferð, rannsóknir og samvinnu um rekstrarverkefni.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra skipaði fljótlega eftir að hún tók við af Ögmundi Jónassyni í haust. Megintilefnið var önnur skýrsla sem starfshópur, undir stjórn Huldu Gunnlaugsdóttur forstjóra Landspítalans, hafði skilað til ráðherra í lok september sl. Þar voru lagðar fram nokkrar tillögur að aðgerðum til endurskipulagningar á þjónustu Kragasjúkrahúsanna, sem eru Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi (HSu), Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) og St. Jósefsspítali-Sólvangur í Hafnarfirði. Í þeirri skýrslu var t.d. ekki mælt með flötum niðurskurði og í Morgunblaðinu var haft eftir Huldu að slíkur niðurskurður væri beinlínis hættulegur.

Starfshópnum, sem Álfheiður skipaði í kjölfarið, var ætlað að fara yfir gögn um starfsemi og rekstur þessara sjúkrastofnana og greina ábatann af þremur helstu tillögum Huldu og félaga, þ.e. að endurskipuleggja þjónustu í skurðlækningum, fæðingar- og kvensjúkdómaþjónustu og seinni hluta sjúkrahúsmeðferðar. Í heilbrigðisráðuneytinu er litið svo á að engar tillögur séu gerðar í skýrslunni í sjálfu sér, heldur sé hún fyrst og fremst greining á kostnaði og ábata, miðað við tilteknar gefnar forsendur eins og það er orðað.

Mikill munur á stofnunum

Margt fleira forvitnilegt er í skýrslunni, eins og kostnaður við aðkeypta sérfræðiþjónustu og upplýsingar um fjölda fæðinga á hverja ljósmóður og nýtingu skurðstofa. Eru þær tölur mjög mismunandi eftir sjúkrastofnunum. Þannig nam aðkeypt klínísk sérfræðiþjónusta 216 milljónum kr. á St. Jósefsspítala árið 2008 en sami kostnaður á LSH nam 21 milljón. Fjöldi fæðinga á hverja ljósmóður var um 28 á HSu, en nærri 50 fæðingar á hverja ljósmóður á LSH. Þá var nýting á skurðstofu HSu 22%, en 44-85% á öðrum sjúkrahúsum. Einnig er athyglisvert að í fyrra fæddu 40% fæðingarkvenna af Suðurlandi á LSH á meðan sama hlutfall var 28-29% hjá konum af Suðurnesjum og Vesturlandi.

  • 442 milljóna kr. ábati af flutningi fæðingar- og kvensjúkd.þjónustu af Kragasjúkrahúsum á LSH.
  • 453 milljóna kr. ábati af flutningi 30% legusjúklinga af LSH á Kragasjúkrahúsin eftir bráðaþjónustu.
  • 835 milljóna kr. ábati af flutningi allra skurðlækninga af Kragasjúkrahúsum á Landspítalann.
  • 216 milljónir kr. fyrir aðkeypta klíníska sérfræðiþjónustu á St. Jósefsspítala 2008.
  • 21 milljón kr. fyrir aðkeypta klíníska sérfræðiþjónustu á Landspítalanum 2008.

Verkfæri til ákvarðanatöku

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra segir að ekki verði farið í tilflutningá verkefnum milli sjúkrahúsanna á komandi ári. Skýrslan muni engu að síður nýtast stjórnendum vel í þeim niðurskurði sem framundan er. „Ekki verða teknar einhliða ákvarðanir ofan frá um tilflutning verkefna. Menn telja sig geta hagrætt og gert hlutina betur og ódýrar samkvæmt ýmsum þeim leiðum sem bent er á í skýrslunni. Hún er ákveðið verkfæri og varpar nýju ljósi á starfsemi Kragasjúkrahúsanna,“ segir Álfheiður en bendir á að allar tölur í skýrslunni séu frá árinu 2008, eða fyrir bankahrunið. Mikið hafi breyst síðan þá og hátt í 500 milljóna króna niðurskurður orðið á sjúkrahúsunum og álíka mikið verði á næsta ári. „Þessar stóru tölur, sem verið er að horfa á í skýrslunni, eru því ekki raunverulegar. Mikið hefur breyst en samanburðurinn sýnir engu að síður að sjúkrahúsin hafast ólíkt að. Eflaust mun eitthvað af verkefnum flytjast á milli en það verður ekki gert með stóru valdboði að ofan. Reynslan sýnir að slíkum ákvörðunum hefur verið tekið illa, bæði af stjórnendum sjúkrahúsanna, starfsmönnum og ekki síst íbúum og sveitarstjórnum á viðkomandi svæði. Það er ekki merki um pólitískan kjark að efna til stríðs við íbúa og alla hagsmunaaðila eins og þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór, gerði í upphafi þessa árs,“ segir Álfheiður.

Bara önnur hliðin á peningnum

Spurð hvort ráðuneytið verði samt ekki að taka þessar ákvarðanir, til að ná fram raunverulegum sparnaði, segir hún niðurstöður skýrslunnar bara aðra hliðina á peningnum. Eftir sé að skoða t.d. hve miklum verkefnum Landspítalinn geti tekið við, eins og auknum fæðingum, án þess að ráðast í nýframkvæmdir. Ekki sé tekið tillit til slíks kostnaðar í skýrslunni, eða ferðakostnaðar fyrir sjúklinga.

Getum bætt við verkefnum

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir það verkefni heilbrigðisráðuneytisins að skipuleggja heilbrigðisþjónustuna í landinu. Skýrslan fjalli um skipulagið og hvernig þjónustan eigi að fara fram. „Mér fyndist eðlilegt að reynt yrði að nýta þessa miklu vinnu og tillögur sem koma fram í skýrslunni. Þarna er bent á að hægt sé að ná fram töluverðum sparnaði í heilbrigðiskerfinu án þess að það komi niður á þjónustu við sjúklinga, og jafnvel gert hana betri,“ segir Björn og telur Landspítalann í stakk búinn til að taka til sín aukin verkefni. Hægt sé að nýta húsnæði, starfsfólk og tæki enn betur en gert sé í dag. Spurður hvort farið verði eftir ábendingum í skýrslunni segist Björn ekki sjá merki þess ennþá, „sem mér finnst miður“. Ákveðið frumkvæði í þessum efnum verði að koma frá heilbrigðisráðuneytinu en það taki að auki sinn tíma að ná fram tilflutningi verkefna milli stofnana.

Stórskerða á þjónustuna

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og fv. heilbrigðisráðherra, segir niðurstöðu starfshóps heilbrigðisráðherra ekki koma sér á óvart, hún sé enn ein staðfestingin á hinu augljósa; að ráðast verði í skipulagsbreytingar frekar en að fara í flatan niðurskurð. „Þegar við ætlum að reyna að halda uppi þjónustu á heimsmælikvarða, þá er nauðsynlegt að fara í skipulagsbreytingar í stað þess að fara leið vinstriríkisstjórnarinnar, að vera með flatan niðurskurð. Það mun stórskerða þjónustuna og búa til biðlista sem við höfum ekki séð árum og áratugum saman. Óvíst er hvort það tekst að ná sömu gæðum þjónustunnar ef farið verður í flatan niðurskurð. Sú leið er atlaga gegn sjúklingum og starfsfólki í heilbrigðiskerfinu, sérstaklega á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þetta snýst um pólitískan kjark og hann er enginn hjá síðustu tveimur heilbrigðisráðherrum,“ segir Guðlaugur Þór.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »
Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BLEKHYLKI
Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ...
Ford Econoline 250 4x4 Til sölu
Árg 91 Húsbíll Skoð 2011 Ek 200 þkm 8cyl Bensín Ssk. Vél yfirfarin fyrir 40þ km ...
Gullfallegir Beagle hvolpar til sölu
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
 
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...