Uppnám á þingi vegna skjala
Uppnám er á Alþingi vegna þeirra skjala, sem fjárlaganefnd bárust frá lögmannsstofunni Mishcon de Reya í kvöld.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, sagðist ekki gera ráð fyrir því að fram fari atkvæðagreiðsla um Icesave-fumvarpið á morgun í ljósi þess, að boðað væri í bréfi lögmannsstofunnar að von væri á frekari gögnum, sem Alþingi myndi vilja kynna sér áður en tekin sé endanleg ákvörðun um Icesave-frumvarpið, þar sem þau geti varpað frekara ljósi á stöðu málsins.
Sigmundur Davíð sagði, að í bréfi lögmannsstofunnar komi fram að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefði í vor fengið sérstaka kynningu á skýrslu sem Mishcon de Reya tók þá saman. Tekið sé hins vegar fram, að úr þeirri kynningu hefðu verið fjarlægðar upplýsingar sem Svavar Gestsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, hafi ekki viljað að fylgdu með í pakkanum til utanríkisráðherra.
Um var að ræða það mat lögmannsstofunnar að málshöfðun á hendur breska fjármálaeftirlitinu gæti styrkt stöðu Íslands í viðræðum um Icesave-málið.
„Ég held að það sé óhætt að segja, að ríkisstjórn í hvaða Evrópulandi sem er og hefði verið staðin að því að fela slíkar upplýsingar, eftir að hafa verið marg-, marg-, marginnt eftir því hvort örugglega væri allt komið fram sem lýtur að þessum hliðum málsins, sæti ekki lengi," sagði Sigmundur Davíð.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði að það væri óheppilegt að gögn komi fram svo seint í umfjöllun máls og raun beri vitni, og það sé skiljanlegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar telji sig þurfa tíma til að skoða þau.
Össur sagðist ekki hafa séð þessi gögn áður en hlaupið á þeim í kvöld, bæði bréf Mishcon de Reya og þau kynningargögn, sem lögmannsstofan segi að hafi átt að láta Össur sjá í Lundúnum 31. mars en ekki hafi verið gert.
Í einum kafla þeirrar kynningar sé fjallað um möguleika sem íslensk stjórnvöld kynnu að hafa haft til málsvarnar gegn Bretum, aðallega vegna setningar hryðjuverkalaganna. Sagði Össur að þessi kafli fjallaði aðallega um möguleika á að fara með mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Bloggað um fréttina
-
Hrannar Baldursson Hvort er ICESAVE smámál eða stórmál? -
Axel Jóhann Axelsson HNEYKSLI -
Jón Baldur L'Orange ,,Þingmenn fengu einhver gögn sem hefðu fundist" -
Haraldur Haraldsson Uppnám á þingi vegna skjala/lengi skal á þessa ríkisstjórn reyna,hún ... -
Stefán Friðrik Stefánsson Gögnum leynt - uppljóstrun á elleftu stundu -
Njörður Helgason Er samningurinn sýndarveruleiki? -
Ómar Bjarki Smárason Er ríkisstjórnin starfhæf eftir nýjustu uppákomu í Icesave? -
Guðjón Emil Arngrímsson Aumingja Svavar Gestsson...... -
Þórarinn Þ Gíslason SVAVAR MINN ! HVAÐ HEFUR ÞÚ GERT AF ÞÉR NÚNA, ... -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hafði Svavar Gestsson leyfi til þess að fjarlægja þessi gögn ... -
Jón Valur Jensson Nýtt þöggunarhneyksli Icesave-stjórnvalda! – Uppnám á Alþingi ... -
Sigurður Jónsson Leynimakk Steingríms J. heldur áfram.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Össur sagði öll mikilvæg gögn komin fram
- Fimmtudagur, 31. desember 2009, Innlent Breyttu kynningunni lekið í fjölmiðla
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Svavar neitaði að mæta á fundinn
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Vilja að Svavar verði kallaður fyrir
- Miðvikudagur, 30. desember 2009, Innlent Steingrímur segist trúa Össuri
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































