Engin ákvæði um frest forseta
Samkvæmt stjórnarskrá Íslands skal leggja lagafrumvarp, sem Alþingi setur, fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Ekki er tekið fram í stjórnarskránni hvað langan frest forseti getur tekið sér.
Synji forseti lagafrumvarpi staðfestingar fær það þó engu að síður lagagildi en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.
Dæmi eru um að forseti hafi tekið sér frest áður en hann staðfestir lög með undirskrift. Vigdís Finnbogadóttir tók sér frest 24. október 1985 áður en hún staðfesti lög um kjaradóm í verkfallsdeilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf. Þennan dag voru liðin 10 ár frá kvennafrídeginum árið 1975 og Vigdís hafði ekki ætlað sér að sinna neinum störfum þennan dag. Hún skrifaði undir lögin þremur stundum síðar.
Ólafur Ragnar Grímsson synjaði fjölmiðlalögunum svonefndu staðfestingu árið 2004. Alþingi samþykkti lögin með naumum meirihluta 24. maí en Ólafur Ragnar fékk frumvarpið til staðfestingar 1. júní og tilkynnti 2. júní að hann myndi ekki staðfesta lögin.
Lögin öðluðust þó gildi í samræmi við stjórnarskrána en áður en ríkisstjórnin ákvað að láta ekki fara fram um þau þjóðaratkvæðagreiðslu og voru þá sett ný lög, sem afnámu fjölmiðlalögin.
Bloggað um fréttina
-
Auðun Gíslason Á nú að gera það tortryggilegt? -
Þórarinn Þ Gíslason MAÐUR ÁRSINS SAGÐI SKÝRT: Í ÁHEYRN ALLRA GESTA , ÞÁ ... -
Magnús Helgi Björgvinsson Bíddu er þetta mögulegt!
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. janúar 2010, Innlent Fjölmiðlalögin fóru ekki í þjóðaratkvæði
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Jaðrar við stjórnarskrárbrot
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Eldri lögin taka gildi falli þau nýju
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent Blaðamannafundur í fyrramálið
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent InDefence styðja ákvörðun forsetans
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































