25 létust af slysförum
Í fyrra létust 25 einstaklingar af slysförum, fimm færri en 2008. Flestir létust í umferðarslysum eða 17, þrír í vinnuslysum, þrír í drukknunarslysum, einn í sjóslysi, einn í flugslysi en enginn í heima og frítímaslysum, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Langflestir sem létust voru karlmenn eða 21 einstaklingur. Konur sem létust í slysum á árinu voru fjórar. Engin börn 14 ára og yngri létust af slysförum á árinu og er það annað árið í röð sem ekkert barn á þeim aldri deyr af slysförum en mikill ávinningur hefur orðið síðustu ár í slysavörnum barna.
Slysavarnafélagið Landsbjörg breytti banaslysaskráningu sinni árið 2002 til hafa hana sambærilega við alþjóðaskráningu og skráningu í Slysaskrá Íslands. Fram að þeim tíma voru Íslendingar sem létust erlendis t.d. inni í slysatölum félagsins en ekki í slysatölum þess lands sem þeir létust í eins og er í dag. Samanburður á milli ára er því eingöngu frá árinu 2002.
Ekki er hægt að segja að banaslysin hafi orðið frekar á einu tímabili ársins frekar en öðru. Þrír Íslendingar létust af slysförum erlendis og eru skráðir í banaslysatölur í viðkomandi landi.
Allt frá árinu 1928 hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg skráð banaslys í landinu. Í upphafi voru sjóslys og drukknanir eingöngu skráð en allt frá árinu 1948 hefur félagið skráð öll banaslys. Félagið vottar öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna andláts ástvina samúð.
Fleiri myndir (3)
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 1. janúar 2011, Innlent 26 létust af slysförum árið 2010
- Mánudagur, 5. janúar 2009, Innlent 32 létust af slysförum í fyrra
- Föstudagur, 2. október 2009, Innlent Framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun lokið
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent 36 féllu fyrir eigin hendi
- Föstudagur, 25. september 2009, Innlent Hjarta- og æðasjúkdómar algengasta banameinið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































