Eldur í Njarðvík
Brunavarnir Suðurnesja slökktu í nótt eld í trésmíðaverkstæði við Hafnarbraut 6 í Njarðvík. Neyðarlínunni var tilkynnt um miðnættið um mikinn reyk og sprengingar í húsinu sem áður var olíubirgðarstöð Olís. Þegar slökkviliðið kom á staðinn rauk mikið úr húsinu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Útkallið barst átta mínútum eftir miðnættið. Búið var að negla krossviðarplötur fyrir alla glugga og þurftu slökkviliðsmenn að saga sér leið um bílskúrshurð inn í húsið. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.
Í frétt frá Brunavörnum kemur fram að mikill hiti og reykur hafi verið inn í húsinu en ekki mikill eldur. Að sögn varðstjóra Brunavarna náði eldurinn ekki að breiðast út en hafði samt læst sig í þaksperrur hússins.
Ekki er hægt að fullyrða um neitt varðandi eldsupptök en eins og áður sagði var húsið harðlæst og því erfitt að komast þar inn án þess að skilja eftir einhverskonar ummerki. Mikill eldsmatur var inni og í raun mesta mildi að húsið var lokað þar sem súrefni átti ekki greiða leið inn. Slökkvistarfi var svo lokið um 02:30 en húsið var svo vaktað til 04:30.
Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum verða eldsupptök könnuð þegar birtir.
Erill hjá Brunavörnum Suðurnesja
Nokkur erill var á starfssvæði Brunavarna Suðurnesja um áramótin og á nýársdag, samkvæmt frétt frá Brunavörnum. Sjö sinnum á stuttu tímabili í nótt voru starfsmenn kallaðir út í sjúkraflutning og á tímabili voru þrír bílar úti á sama tíma. Þrisvar var slökkvilið kallað út en í tvö skipti var um eld að ræða.
Í fyrra skiptið var tilkynnt um eld í ruslagám við Sigurjónsbakarí og það seinna var í lítilli „brennu" sem er algeng um áramótin. Þar hafa óprúttnir aðilar safnað öllum notuðum flugeldum og skotkökum saman og haldið sína eigin áramótabrennu. Oft verður mikill reykur frá þessu sem jafnvel berst inn í nærliggjandi hús og það getur verið hættulegt.
Reyndar voru nokkrar þannig brennur sem þurfti að slökkva í nótt en ákveðið var að taka smá rúnt um svæðið og kanna hvort um fleiri brennur væri að ræða og þá komu í ljós eins og áður sagði nokkrar. Þriðja útkallið var vegna umferðaróhapps þar sem þörf var á að hreinsa upp olíu sem lekið hafði frá bílnum.
„Nýársdagur byrjaði rólega og greinilegt að íbúar á svæðinu hvíldust vel eftir áramótafagnaðinn. En svo um 17:00 barst tilkynning um eld í gömlum herbragga á verktakasvæðinu á Ásbrú. Braggi þessi er síðasti sinnar tegundar og jafnvel var áætlað að nýta hann sem hluta af herminjasafni hér í Reykjanesbæ.
Líklegt er talið að um íkveikju hafi verið að ræða en ekkert rafmagn var á bragganum. Búið var að brjóta allar rúður og sparka upp hurðum. Við komu slökkviliðs var bragginn alelda en greiðlega gekk að slökkva eldinn en kalla þurfti út auka mannskap. Slökkvistarfi lauk svo rétta rúmlega 19:00.
Ljóst er að þarna brunnu
til kaldra kola einar elstu minjar sem til eru um veru hersins hér á landi og
því óhætt að segja að þó að fjárhagslegt tjón hafi ekki verið mikið þá er tjónið
engu að síður töluvert ef litið er til sögugildi braggans.



































