Krýsuvíkurkirkja brann í nótt
Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í nótt. Slökkvilið Grindavíkur var kallað út laust eftir klukkan tvö í nótt, Þegar komið var á vettvang var kirkjan fallin. Slökkviliðið slökkti í því sem hægt var að slökkva. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tankbíl fullan af vatni á staðinn.
Ásmundur Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, sagði að útkallið hafi komið frá Neyðarlínunni kl. 02:04 og að einn bíll hafi verið sendur á vettvang. Leiðin úr Grindavík í Krýsuvík er ekki auðfarin á þessum árstíma og var slökkviliðið um hálftíma að Krýsuvíkurkirkju.
Þegar slökkviliðsmennirnir komu á vettvang var kirkjan fallin og gátu þeir ekki gert annað en að slökkva í glæðunum. Fenginn var tankbíll með vatn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði.
Ekkert rafmagn er á staðnum og ekki er vitað um eldsupptök. Nokkuð ljóst þykir að aðeins komi þar tvennt til greina: Íkveikja eða mannleg mistök. Lögreglan mun rannsaka eldsupptökin í dag.
„Þetta er skelfilegt. Það er eina orðið sem ég á yfir þetta,“ sagði séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju. Krýsuvíkurkirkja er í Hafnarfjarðarprestakalli. „Það var dýrgripur sem var þarna í Krýsuvík, einstök kirkja og gríðarlega mikið heimsótt.“
Í kirkjunni var gestabók og þúsundir gesta skrifuðu nöfn sín í hana á hverju ári. Þegar messað var í kirkjunni var hún alltaf setin til þrengsla og fjöldi fólks utandyra, að sögn Þórhalls. Hann sagði marga hafa borið vinarhug til gömlu kirkjunnar í Krýsuvík. Missir hennar sé því mikið áfall.
Þórhallur sagði að altaristafla Sveins Björnssonar, sem hann málaði sérstaklega fyrir kirkjuna, hafi bjargast. Venjan var að messa í Krýsuvíkurkirkju í lok september ár hvert. Eftir þá messu var altaristaflan tekin niður og geymd ásamt öðrum lausum kirkjugripum í Hafnarfjarðarkirkju yfir veturinn.
Krýsuvíkurkirkja var byggð árið 1857, fyrir 153 árum, og endurbyggð og endurvígð árið 1964. Kirkjan var í vörslu þjóðminjavarðar.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Ömurlegt -
Tollinn Neisti úr flugeld? -
Jón Snæbjörnsson Hvernig dettur fólki annað eins í hug -
Sigríður Sigurðardóttir Alelda? -
Anna Dóra Gunnarsdóttir Það var leitt -
-
Baldur Hermannsson Ofbeldishneigðin krefst útrásar -
Ómar Bjarki Smárason Hreint ótrúlegt... -
Páll Rúnar Pálsson Nú verður að bretta upp ermar! -
Jóhannes Ragnarsson Sértrúarsöfnuður á ferð? -
Jóhann Elíasson SÁ SEM ÞETTA GERÐI ER MIKIÐ VEIKUR OG ÞARF HJÁLP ... -
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir Krýsuvíkurkirkja brann í nótt. -
Reynir W Lord Endurreisn Krýsuvíkurkirkju
Innlent »
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
- Veita Hvít-Rússum aðstoð
- Áfallin staða A-deildar í plús
- Er hóflega bjartsýnn
- Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt
- „Engin minnihlutastjórn“
- ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans
- Kjarval lækkar vöruverð
- Fresta innheimtu hesthúsaskatts
- Jón Ásgeir: Engir peningar teknir úr Sólarsjóði
- Með ekkert nema fötin utan á sér
- Hvorki fordómar né hatursáróður
- Tekjur lífeyrisþega hafa lækkað
-
Skart stöðvað á leið úr landi
- Jónas Þór: Lögmenn og réttarríkið
- Amnesty með samstöðufund
- Fagna inntökuprófum
- Lukkulegir lottóvinningshafar
- „Líflínan liggur í gegnum flugvöllinn“
- 8 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás
- Furða sig á ummælum bæjarfulltrúa
- Boðið í heimsókn á þjóðarheimili
- Ögmundur gagnrýnir Sjónvarpið
- Samstaða er í skýjunum
- Páll Vilhjálmsson: Sértrúarsöfnuður
- Minni notkun, minna tjón
- Vilja áfram eiga aðild að stjórn lífeyrissjóða
- Erfitt að draga línuna
- Flughált í Flóanum
- Hefur ekki verið vísað til lögreglu
- Hálkublettir víða
- Sjö klukkustundir á sjúkrahús
- Soffía Anna: Lokun líknardeildar
- Maðurinn sætir geðrannsókn
- Eldri borgarar virkir á vinnumarkaði
- 3 nýir áfangastaðir Iceland Express
-
Brotinn en brattur brettakappi
- Þróunarmál rædd af ráðuneytisstjórum
- Margir vilja læra íslensku
- Séreignarsjóður skerðir ekki bætur
- Fundar áfram með Huang Nubo
- Styðja menntun í Úganda
- Lentu óvænt í heimafæðingu
- Samstaða með 21% fylgi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. janúar 2010, Innlent Brunarannsókn á frumstigi
- Fimmtudagur, 23. september 2010, Innlent Kveiktu í Krýsuvíkurkirkju
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Sumarbústaður brann
- Laugardagur, 18. apríl 2009, Innlent Grafa brann til kaldra kola
- Þriðjudagur, 12. október 2010, Innlent Annað útkall í Hafnarfjörð
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
-
Norðurljósin utan úr geimnum
-
Harry prins kominn með þyrlupróf
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suð...




































