Flugeldaslys í Grafarvogi

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Jakob

Þrettán ára gamall drengur var fluttur á slysadeild í kvöld eftir að skotterta sprakk óvænt í andlit piltsins við Logafold í Grafarvogi í kvöld. Hann hlaut augnáverka en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl piltsins eru. Tilkynning barst kl. 18:46.

Aðrir piltar voru á staðnum þegar þetta gerðist en að sögn lögreglu sluppu þeir ómeiddir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert