Samkvæmur sjálfum sér
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor, sagði í Sjónvarpinu, að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, hefði verið samkvæmur sjálfum sér þegar hann ákvað að synja lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave staðfestingar.
Þá sagði hann, að það væri tilgáta forsetans, að þjóðaratkvæðagreiðsla muni skapa sátt um málið. Sagði Gunnar Helgi, að það væri þó ekki víst og vísaði m.a. til atkvæðagreiðslu um álver í Hafnarfirði fyrir nokkrum árum.
Eiríkur Tómasson, prófessor, sagði að það léki enginn stjórnskipulegur vafi á að forseti geti synjað lögum staðfestingar og engar hömlur væru á því í stjórnarskrá hvaða lögum væri hægt að synja.
Hann sagðist þó ekki viss um að þetta mál verði látið ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu. Málið væri ekki vel til þess fallið og að auki hefðu Íslendingar átt í erfiðri deilu við nágrannaríki sín. Það verði erfitt fyrir hvern og einn Íslending að ganga til kjörborðsins og taka afstöðu.
Eiríkur sagðist vera bundinn trúnaði en hann vissi að í öllum milliríkjasamningum væru ýmsir hlutir undirliggjandi, sem ekki væri hægt að fjalla um opinberlega. Sagðist hann þykjast vita, að ef að tíminn hafi unnið með Íslendingum væri möguleiki, þrátt fyrir þá skýru skilmála sem eru í Icesave-lögunum, að taka þá upp. Það myndi setja framtíðar ráðamenn Íslendinga í vanda, ef þjóðin samþykkti þessa skilmála í þjóðaratkvæðagreiðslu og því væri þetta mál ekki vel fallið til þjóðaratkvæðis.
Hann sagði, að til greina komi því, að Alþingi felli lögin úr gildi og freisti þess að taka upp samninga við Breta og Hollendinga að nýju. Þá sé auðvitað hugsanlegt að Bretar og Hollendingar og freisti þess að leita réttar síns fyrir dómstólum.
Gunnar Helgi Kristinsson sagði að ríkisstjórnin gæti gripið til róttækari aðgerða og sagt af sér í mótmælaskyni við ákvörðun forsetans. Þá væri það undir Ólafi Ragnari Grímssyni komið, að leysa stjórnarkreppu og hugsanlega gæti hann þá myndað utanþingsstjórn.
Bloggað um fréttina
-
Þórarinn Þ Gíslason NÚ ER MÉR ÖLLUM LOKIÐ, ÞVÍ PROFESSORARNIR GUNNAR HELGI OG ...
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. janúar 2010, Innlent „Ekki mikið tilefni til biðleiks“
- Miðvikudagur, 9. desember 2009, Innlent Fleiri áskoranir en árið 2004
- Mánudagur, 19. júlí 2010, Innlent Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika
- Miðvikudagur, 25. nóvember 2009, Innlent Forseti synji Icesave
- Miðvikudagur, 2. febrúar 2011, Innlent Fagnar afstöðu sjálfstæðismanna
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































