Sundrung ekki af hinu góða

Talsmenn Indefence hópsins fagna „vel ígrundaðri ákvörðun“ forseta Íslands um að staðfesta ekki Icesave lögin heldur senda þau til atkvæðagreiðslu hjá þjóðinni.

Eiríkur S. Svavarsson, einn talsmanna hópsins segir að nú eigi þjóðin næsta orð í málinu. Hann telur að efnislega standi þjóðin nokkuð þétt saman um þetta mál og vonar að í framhaldinu upphefjist ekki kosningabarátta með og á móti lögunum. Sundrungin sé ekki af hinu góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert