Frekari lánagreiðslur til Íslands gætu tafist
Lánveitingar Norðurlandanna og Póllands til Íslendinga eru hluti af efnahagsáætlun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) fyrir Ísland.
Mark Flanagan, fulltrúi AGS, sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem kemur fram að samkomulag um Icesave sé ekki skilyrði fyrir efnahagsáætluninni, svo fremi sem áætlunin sé að fullu fjármögnuð.
Nú þegar hafa um 130 milljarðar króna skilað sér frá AGS og 300 milljónir evra frá Norðurlöndunum Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku, jafnvirði 54 milljarða króna. Til viðbótar hafa um sjö milljarðar skilað sér frá Færeyingum, sem voru fyrstir grannþjóða til að lána Íslendingum á síðasta ári.
Enn eru ódregin umsamin lán frá Norðurlöndunum, AGS og Póllandi að upphæð 2,3 milljarðar evra, eða um 414 milljarðar króna á núvirði. Þar af er lánsloforð upp á 27 milljarða króna frá Pólverjum. Er öllum þessum lánum ætlað að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans, sem nú stendur í um 450 milljörðum króna. Ótalin eru 640 milljarða króna lán Hollendinga og Breta vegna Icesave-reikninganna, sem fullkomin óvissa er um eftir atburði gærdagsins.
Fulltrúar finnskra og sænskra stjórnvalda létu hafa eftir sér í erlendum fjölmiðlum í gær að frekari lánafyrirgreiðsla til Íslendinga gæti frestast. Gildistaka laganna um Icesave væri forsenda þess að lánin yrðu veitt og haft yrði samráð við AGS um framhaldið.Önnur endurskoðun á efnahagsáætlun AGS og Íslands átti að fara fram í lok þessa mánaðar. Í yfirlýsingu sinni segir Mark Flanagan að sjóðurinn muni meta aðstæður í samráði við íslensk stjórnvöld og ráðfæra sig við önnur ríki sem koma að fjármögnuninni. Þá muni starfsmenn AGS starfa áfram með íslenskum stjórnvöldum við að bjarga þeim út úr þeim vanda sem landið er í.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent AGS: Icesave ekki skilyrði
- Laugardagur, 10. apríl 2010, Innlent Líklega í gegn 16. apríl
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Innlent Sendir ekki fyrirspurn til Norðurlanda
- Miðvikudagur, 3. febrúar 2010, Innlent Norðmenn breyta um Icesave-stefnu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































