Umfjöllunin mildari
Umfjöllun erlendra fjölmiðla um synjun forsetans á undirritun Icesavelaganna virðist heldur vera á mildari nótum í dag en í gær. Íslensk stjórnvöld hafa veitt erlendum miðlum fjölmörg viðtöl frá því að forsetinn synjaði lögunum undirritunar.
Töluvert er fjallað um málið í breskum fjölmiðlum í dag. Greinarhöfundur Daily Telegraph segir að almenn reiði hafi brotist út á Íslandi vegna þeirra ranginda sem bresk stjórnvöld hafi beitt þá með því að setja á þá hryðjuverkalög. Dálkahöfundur Financial Times segir Íslendinga hafa fundið kurteisa og hófsama leið til að lýsa andstöðu við að þurfa að greiða fyrir hroka og græðgi annarra.
Ríkisútvarpið BBC, dagblaðið Guardian og Reuters fréttastofan greina frá undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslu en í The Times er haft eftir aðstoðarfjármálaráðherra Bretlands, að málið geti haft mikil og neikvæð áhrif á alþjóðlegt samstarf Íslendinga. Athygli vekur að blaðið heldur því fram að sá skilningur ríki að breska fjármálaráðuneytið geti haldlagt eignir Landsbankans sem smám saman séu að skila sér.
Sömuleiðis stingur í stúf að Sky sjónvarpsstöðin breska segir enn í fyrirsögn að Ísland neiti að borga skuld sína við Breta, jafnvel þótt haft sé eftir aðstoðarmanni viðskiptaráðherra, að landið hafi fyllilega í hyggju að uppfylla skuldbindingar sínar.
Í The Wall Street journal segir að málið geti stefnt viðreisnaráætlun Íslands í hættu. Á vef blaðsins sem og vef Guardian er einnig hægt að kjósa um afstöðu lesenda til þess hvort Íslendingar eigi að borga Icesave skuldina eða ekki og virðist mikill meirihluti hallast að því að þeir eigi ekki að gera það. Geta lesendur hvar sem er í heiminum tekið þátt í kosningunni, einnig Íslendingar.
Hollenskir og norrænir fjölmiðlar fjalla einnig um málið og m.a. birtist forsíðuviðtal við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra í hollenska dagblaðinu de Volkskrant í dag. Steingrímur hefur einnig veitt AP og Reuters fréttaveitunum viðtöl sem og ljósvakamiðlunum BBC, ITN og Channel 4 þar sem hann var í beinni útsendingu í gærkvöld. Þá hefur hann rætt við breska dagblaðið Independent og norræna fjölmiðla. Þá hafa Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra einnig veitt viðtöl í Bretlandi og á Norðurlöndum í gær og í dag.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 3. mars 2010, Innlent Mikill áhugi erlendra fjölmiðla á þjóðaratkvæðagreiðslunni
- Mánudagur, 8. mars 2010, Innlent Með heimspressuna í túnfætinum
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Norrænir vinstrimenn ósammála um Icesave
- Þriðjudagur, 8. september 2009, Innlent Ekki ályktað að Gunnar ætti að fara
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































