2,2 milljónir á hvern Íslending en 9 þúsund á Breta og Hollendinga
Ef Íslendingum yrði gert að standa að fullu undir Icesave samsvarar það 12.000 evrum á hvern Íslending (tæpum 2,2 milljónum króna). Kostnaðurinn yrði hins vegar aðeins 50 evrur (9 þúsund krónur) á hvern skattgreiðanda í Hollandi og Bretlandi. Þetta kemur fram í bréfi Ann Pettifor og Jeremy Smith hjá fyrirtækinu Advocacy International í Bretlandi sem birt er í Financial Times í gær.
Ann Pettifor er virtur hagrfræðingur í Bretlandi og hefur m.a. látið mikið til sín taka við niðurfellingu skulda í þróunarríkjum. Í bréfi Pettifor og Smith segir að ríkisstjórnir Bretlands og Hollands ættu að fagna ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki Icesave-lögin og nota tækifærið til að draga til baka kröfur um fullar endurgreiðslur þessarar fámennu þjóðar.
Þau segja það ósanngjarnt að þröngva Íslendingum til að bera allar byrðarnar af endurgreiðslunum. Bretar og Hollendingar eigi að hætta að beita þjóðina efnahagslegum þrýstingi og fallast á sameiginlega ábyrgð þjóðanna á hruninu.
Einn lesandi ritstjórnargreinar blaðsins Independent, sem birtist í gær, tekur í sama streng. Hann segir að Icesave-skuld Íslands sé 16 þúsund dalir á hvert mannsbarn, jafnvirði 2,2 milljóna króna. Eftir fyrri heimsstyrjöld hafi Þjóðverjum verið gert að greiða 269 milljarðar gullmarka í stríðsskaðabætur en sú upphæð var síðar lækkuð í 132 milljarða marka og jafnframt gert ráð fyrir, að aðeins um 50 milljarðar yrðu greiddar. Lesandinn segir, að 132 milljarðar gullmarka svari til 200 milljarða dala á núverandi gengi. Þýska þjóðin hafi talið 60 milljónir manna og því hafi skaðabæturnar numið 3300 dölum á mann, jafnvirði 417 þúsunda króna. Þjóðverjar séu nú fyrst að ljúka greiðslu skuldarinnar, 90 árum eftir að fyrri heimsstyrjöld lauk.
„Niðurstaða: Íslenska þjóðin þarf að greiða fimm sinnum meira fyrir að fremja þann glæp að búa í landi með stórt eftirlitslaust fjármálakerfi en Þýskalandi var gert að greiða fyrir að hefja stríð þar sem fimm milljónir manna létu lífið og stór hluti af Belgíu og Frakklandi var lagður í rúst," segir lesandinn.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Gott hjá henni en... -
Bryndís Böðvarsdóttir Gott að sjá að við erum ekki ein í þessari ... -
Tómas Ibsen Halldórsson Þökk sé þér Ann Pettifor
Innlent »
- Svartir sauðir á hálendinu
- Mæling á PSA ekki áreiðanleg
- Vilja starfshóp um póstverslun
- Icesave hefði sett Ísland á hausinn
- Tíðinda að vænta innan tíu daga
- Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð
- Lagði mat á vegslóða
- Rannsókn nauðgunarmála lokið
- Óljóst um hvað málið snýst
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 19. ágúst 2009, Innlent Tang: Skilur afstöðu Íslendinga vel
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Innlent Hávaði gegn Icesave
- Miðvikudagur, 10. mars 2010, Innlent Haldi málstaðnum á lofti
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Telja líklegt að Icesave-samningar náist
- Laugardagur, 6. júní 2009, Innlent 50 milljarðar á reikningi
-
Perlan fái hlutverk við hæfi
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
Önnur störf
VAT N A J Ö K U L S ÞJ Ó Ð G A R Ð U R ...




































