Gæsluvarðhald staðfest vegna kynferðisbrota

stækka

Árni Sæberg

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður á þrítugsaldri, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn þremur stúlkun á aldrinum 13 til 16 ára.

Í úrskurði héraðsdóms segir, að vísbendingar séu um að maðurin hafi afbrigðilegar kynhvatir og augjóst að hann hafi ekki taumhald á þeim. Kunni að vera að fíkniefnaneysla hans hafi þar einhver áhrif.  Hafi verið tekin sú ákvörðun að maðurinn gangist undir sálfræðimat af þessu tilefni.

Maðurinn var kærður 29. desember fyrir kynferðisbrot  gegn 14 ára   stúlku, sem var framið 22. desember. Sagðist stúlkan hafa hitt manninn eftir að hann sendi henni SMS skilaboð og beðið hana að koma að hitta sig. Hún fór heim til mannsins þar sem hann misþyrmdi henni kynferðislega. Stúlkan sagðist hafa sagt manninum hvað hún væri gömul og einnig væru þær upplýsingar á Facebook-síðu hennar.

Maðurinn neitaði sök og sagðist ekkert kannast við stúlkuna en lögregla segir að vitni og sönnunargögn sýni að það sé ósatt. 

Þá kemur fram að  í nóvember var lögð fram kæra fyrir hönd 16 ára stúlku sem sagði manninn hafa brotið kynferðislega gegn sér. Stúlkan sagðist hafa kynnst manninum á Facebook-vefnum. Héraðsdómur segir, að í skýrslu sem tekin var af stúlkunni séu sláandi lýsingar á afar grófum kynmökum sem hún sagðist hafa verið látin framkvæma gegn vilja sínum.

Í desember var lögð fram kæra á hendur manninum egna brota gegn 13 ára stúlku, sem sagðist hafa kynnst manninum Facebook-síðunni og hitt hann í kjölfarið. Maðurinn hefði a.m.k þrisvar sinnum haft við hana samræði. Stúlkan vildi síðar draga framburð sinn til baka og maðurinn neitaði alfarið sök.

Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að við frumrannsókn hafi fundist margar myndir í tölvu mannsins af ungum hálfnöktum stúlkum. Auk þess hafi fundist hreyfimyndir sem hafi að geyma barnaklám þar sem sjá megi stúlkubörn beitt grófu kynferðisofbeldi.

Fram kemur í úrskurðinum, að kynferðisbrotin, sem maðurinn sé grunaður um, hafi komið  til kasta lögreglu í árslok 2009 með stuttu millibili og eigi það sammerkt að meintir brotaþolar séu ungar stúlkur undir lögaldri þar af tvær undir kynferðislegum lögaldri.  Brotin varði allt að 16 ára fangelsisrefsingu. Lögreglan líti mál þessi mjög alvarlegum augum enda hafi maðurinn yfirburði í aldri og þroska fram yfir stúlkurnar.  Þá endurspegli það aukinn ásetning mannsins, að hann lét ekki segjast og hafi ekki liðið nema vika frá því að hann var yfirheyrður vegna meints kynferðisbrots gegn ungri stúlku og þar til hann hafði sett sig í samband við þá næstu.

Auk þessara brota er maðurinn grunaður um fjölda annarra brota, þar á meðal innbrot, þjófnaði, eignaspjöll og fíkniefnabrot. Samtals eru þetta 11 mál  sem tengjast flest fíkniefnaneyslu mannsins.  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »
Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BARCELONA - Dásamleg borg
Til leigu flott íbúð í Example við Gaudi kirkjuna. Internet og öll bestu þægindi...
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Húsnæði óskast til leigu - 120fm-200fm
Leita að húsnæði fyrir tvö yfir fimmtugt - róleg og reglusöm. Óska eftir íbúð...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA - ERTU BÚIN AÐ KÍ...
 
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...