Þjóðin mun greiða atkvæði með hagsmunum sínum

Bjarni Benediktsson stækka

Bjarni Benediktsson mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, sagðist ekki eiga von á því að mikill ágreiningur væri að ræða um lagafrumvarpið um þjóðaratkvæðagreiðslu. „Það er erfitt að ræða þetta frumvarp án þess að setja hlutina í heildarsamhengi og ræða samningana sjálfa sem bera á undir þjóðina og það hvað við í stjórnarandstöðu höfum verið að segja í kjölfar synjunar,“ sagði Bjarni.

Bjarni benti á að stjórnarandstaðan hefði lagt áherslu á að synjunin veitti tækifæri til þess að koma sjónarmiðum Íslands á framfæri, þar á meðal að Íslendingum beri ekki lagaleg skylda til þess að greiða skuldirnar.

„Það stendur sko aldeilis ekki á okkur að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál. Þjóðin mun greiða atkvæði með hagsmunum sínum í þessu máli og hagmunir Íslands munu aldrei felast í því að greiða atkvæði með þvingunum og kúgun,“ sagði Bjarni. Tók hann fram að sér þætti dapurlegt að ríkisstjórnin hafnaði samstöðu með stjórnarandstöðunnar gegn þeirri kúgun þeirra ríkja sem harðast sækja fram í málinu.

Sagði hann óskiljanlegt að ekki væri lögð aukin áhersla á það að fara með málið fyrir dómstóla og láta reyna á réttarstöðu okkar. Sagði hann ekki hægt að saka Íslendinga um að hafa ekki sýnt sanngirni, þar sem Alþingi hafi m.a. boðið ríkisábyrgð. Hann sakaði viðsemjendur Íslendinga um óbilgirni og skort á sanngirni. 

„Látum það ekki gerast að við getum á árinu 2010 ekki staðið saman um hagsmuni Íslendinga. Hættum að einblína á hvernig við erum komin í þessa stöðu. Meginábyrgðin liggur hjá eigendum og stjórnendum bankanna. Vilji menn nota dýrmætan tíma okkar í þinginu um að eiga umræðu um aðdraganda um þetta mál í stað þess að ræða hvernig megi leysa það, þá óska ég þeim góðs gengis. Nú er tækifæri til þess að standa saman.“

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagðist reiðubúinn að ná sáttum en ekki væri að heyra á ræðu formanns Sjálfstæðisflokks að hann vildi sættir. Össur minnti á að aldrei hefði í sögu lýðveldisins verið talað við jafnmarga ráðherra og fulltrúa annarra ríkja til þess að koma málstað Íslendinga á framfæri. 

Össur kallaði eftir því að Bjarni talaði skýrt um hvað það væri sem hann vildi, því það væri alls ekki skýrt þar sem hann væri stöðugt að skipta um skoðun um hvernig afgreiða ætti Icesave-málið. 

Bjarni spurði á móti hvað ríkisstjórnin vildi. „Ég hef verið talsmaður þess að við leituðum sátta, en takist það ekki er þá ekki augljóst að fara eigi dómstólaleiðina. Það er engin mótsögn í þessu. Vilji menn ekki láta reyna að samstöðu í málinu þá er sjálfsagt að fara með málið í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin mun senda ríkisstjórninni skýr skilaboð.“

Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson Kristinn Ingvarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Umferð á Vesturlandsvegi

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »
Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi

04:53 Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, yfirleitt 5-15 m/s, hvassast norðan- og vestanlands. Rigning við Breiðafjörð og á Vestfjörðum, léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, en skýjað og súld með köflum syðra. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi

Með batnandi veðri gefst færi til útileikja.
05:30 Vel lítur út með veður víðast hvar á landinu um hvítasunnuhelgina. Reyndar má búast við að rigni á Vestfjörðum í dag, en svo stytti upp og víða verði sólríkt. Hitastig hefur stigið verulega síðustu daga og í dag er búist við að hiti klifri yfir 20 stig á norðaustanverðu landinu. Meira »

Segir stuðning við Kanadadollar

Kanadadollari. Úr myndasafni.
Í gær, 22:15 „Þetta er rætt í alvöru á Íslandi. Efnahagsráðherrann fór til Kanada fyrir sex vikum og fundaði með kanadíska seðlabankanum og með þingmönnum og að ég tel fjármálaráðuneytinu líka. Hann kom síðan aftur til Íslands og sagði opinberlega að þetta væri möguleiki sem væri ekki hægt að útiloka.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Eigum á lager ýmsar , og útvegum allar stærðir af landrafstöðvum
10-15-30 kw dieselrafstöðvar á lager, útvegum aðrar stærðir. Deutz , Perkins, ...
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður/bar til leigu á Laugavegi 55, laust strax. Um er að r...
Fellihýsi til sölu
Palomino fellihýsi árg 2006. Fortjald fylgir. Upplýsingar í síma 8927619. frimol...
Vinnustofa óskast
Óska eftir að taka á leigu 20-50 fm atvinnuhúsnæði fyrir grafíska hönnun og hljó...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...