Uppboð frestast fram í mars
Sá miklu fjöldi nauðungaruppboða á fasteignum sem auglýstur er í Morgunblaðinu í dag stafar af því að þótt skuldari hafi óskað eftir frestun á nauðungarsölu, samkvæmt heimild í lögum, er uppboð auglýst. Nauðungarsalan fer hins vegar ekki fram fyrr en eftir 28. febrúar, þegar heimildir til frestunar falla úr gildi.
Sýslumennirnir á höfuðborgarsvæðinu auglýstu í Morgunblaðinu í morgun um 150 nauðungaruppboð á fasteignum. Flestar voru auglýsingarnar um upphaf uppboðs þar sem málið verður tekið fyrir á skrifstofum sýslumanna í næstu viku.
Bogi Hjálmtýsson, staðgengill sýslumannsins í Hafnarfirði, segir fjölda auglýsinga stafa af þeirri breytingu sem gerð var á lögum um frestun á nauðungarsölum í byrjun nóvember. Samkvæmt fyrri lögum hafi málin verið lögð algerlega til hliðar, þegar skuldari nýtti sér rétt til frestunar.
Lögin sem nú gilda geri hins vegar ráð fyrir að uppboð verði auglýst og tekið fyrir, þótt skuldari hafi óskað eftir frestun uppboðs. Ef hins vegar kröfuhafi óski eftir því að eignin fari til framhalds uppboðs á eigninni sjálfri frestist sú aðgerð fram yfir 28. febrúar, þegar fresturinn fellur úr gildi.
Fram kom þegar lögin voru framlengd í haust að einungis lítill hluti þeirra sem frestun nauðungarsölu tekur til hafi nýtt sér ráðrúm sem veitt var með lögunum til þess að koma fjármálum sínum í lag.
Í greinargerð með frumvarpinu var tekið fram að ekki er gert ráð fyrir frekari frestun á nauðungarsölum, eftir 28. febrúar. Allsherjarnefnd þingsins tók þó fram í nefndaráliti að frekari frestun væri ekki útilokuð, ef nauðsyn krefði.
Eigendur íbúða þurfa sem fyrr sjálfir að óska eftir framlengdum fresti og tekið er fram að frestunin gildir einungis um íbúðarhúsnæði.
Tekin verður afstaða til þeirra uppboða sem nú eru í pípunum eftir 28. febrúar en búast má við holskeflu uppboða þá, að óbreyttu. Nokkur hundruð mál eru í frestun hjá sýslumannsembættum, aðallega eignir á höfuðborgarsvæðinu.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Baldursson Það er til lausn ! -
Jakob Falur Kristinsson Nauðungaruppboð
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. september 2009, Innlent Holskefla uppboða verði frestur ekki framlengdur
- Föstudagur, 30. október 2009, Innlent 783 eignir á uppboði
- Þriðjudagur, 2. nóvember 2010, Innlent Allra úrræða leitað áður en til nauðungarsölu kemur
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Svigrúm skuldara aukið
- Föstudagur, 22. október 2010, Innlent Tómar íbúðir í eigu fyrirtækja
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































