Vliet: Ekkert réttlæti hefur enn náðst
Gerard Van Vliet, talsmaður hollenskra sparifjáreigenda, segist ekki telja að réttlæti hafi náðst í Icesave-málinu. Hann segist undrast hvers vegna eftirlitsaðilar á Íslandi hafi leyft íslensku bönkunum að stofna þessa reikninga í Hollandi þó ljóst hafi verið hversu slæm staða Landsbankans hafi verið.Egill Helgason tók viðtal við Vliet í Silfri Egils í dag.
Líkt og fram hefur komið á mbl.is vilja hollenskir innistæðueigendur höfða skaðabótamál gegn Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitinu og jafnvel hollenska seðlabankanum. Vliet sagði í samtali við Morgunblaðið í október í fyrra að óskastaðan væri að geta höfðað skaðabótamál hér á landi gegn bæði seðlabanka og FME.
Van Vliet segir að hægt sé að horfa á málshöfðun út frá tveimur hliðum. Annars vegar hafi FME og Seðlabanki Íslands vanrækt eftirlitsskyldu sína. Hins vegar bendir Van Vliet á reglugerð Evrópusambandsins um mismunun en eitt lykilatriða ESB samningsins er að ekki megi mismuna á grundvelli þjóðernis og vísar þar til umræðu um að hinn íslenski tryggingasjóður innistæðueigenda eigi jafnvel forgangskröfu í bú Landsbankans.
Þá skapi það vandamál að erfitt sé að finna bæði óhlutdræga dómara og lögmenn sem ekki séu á einn eða annan hátt tengdir fjármálahruninu.
Telur hollenska seðlabankann líka ábyrgan
Van Vliet segir að ekki megi gleyma því að hollenski seðlabankinn beri einnig ábyrgð og tekur sem dæmi skýrslu vinnuhóps seðlabanka, þar kom fram varðandi innistæður að ekki aðeins þyrfti að horfa á greiðsluhæfi þess banka sem fyrir er í landinu, heldur þyrfti einnig að horfa til greiðsluhæfis móðurbankans og seðlabanka þess banka.„Hollenski seðlabankinn vissi marga hluti sem hann segist nú ekki hafa vitað og við fáum ekki upplýsingar um samskipti hans við FME. Við báðum um þessar upplýsingar en þeir höfnuðu því. Við vonum að FME leggi þessi samskipti fram fyrir Alþingi þannig að við getum séð samskipti þeirra við hollenska seðlabankann.“ Van Vliet vísar þar í skýrslu sem hann segir að verði lögð fyrir Alþingi í lok þessa mánaðar.
Um 200 manns eru í samtökunum og segjast þau eiga samtals 25 milljónir evra inni vegna Icesave.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 5. október 2009, Innlent Vilja óháðan dómstól
- Miðvikudagur, 17. júní 2009, Innlent Gátu ekki stöðvað Icesave
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Hollensk stjórnvöld afneita afskiptum
- Þriðjudagur, 20. október 2009, Innlent Telja hollensk stjórnvöld líka bera ábyrgð
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Innlent Aldrei hitt Hollendingana
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































