Hálkublettir austan Selfoss

Hálkublettir eru á kafla austan við Selfoss. Eins eru nú hálkublettir á höfuðborgarsvæðinu, á Kjalarnesi, Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi. Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði en hálkublettir í Borgarfirði á Bröttubrekku og í Miðdölum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Á Vestfjörðum er nokkur hálka í Djúpinu. Aðalleiðir eru auðar á Ströndum og Norðurlandi vestra. Á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðausturlandi er víða nokkur hálka - ýmist skráð sem hálka eða hálkublettir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert