Skemmdir eftir snjósleða á golfvelli
Miklar skemmdir hafa orðið af völdum snjósleðamanna á golfvellinum í Tungudal í Ísafirði. Að sögn Tryggva Sigtryggssonar, formanns Golfklúbbs Ísafjarðar, hafa snjósleðamenn stundað það að aka yfir flatirnar, jafnvel stokkið og snúið sleðunum og valdið þannig miklum eignaspjöllum, bæði á flötum og brautum.
Spjöllin uppgötvuðust er Tryggvi fór
ásamt konu sinni í eftirlitsferð á laugardag. Sáu þau einhverjar rákir á hólnum
og ákváðu að skoða flatirnar þegar þau sáu skorur í æfingaflötinni. Eftir að
hafa kannað golfvöllinn fóru þau beint til lögreglunnar og kærðu stórfellt
eignatjón á vellinum. Ekki er búið að meta tjónið en fimm flatir af níu eru
stórskemmdar.
„Æfingaflötin innan við húsið, 7. og 9. flöt, hóllin er
allur skorinn þvers og kruss en 4. flötin er allraverst og jafnvel ónýt, þar
hafa þeir snúið sleðanum og stórskemmt nýju flötina,“ segir Tryggvi en
golfklúbburinn tók flötina í notkun í ágúst eftir að hafa lagt mikla vinnu í að
byggja hana upp. Tryggvi segir að í framhaldinu verði öllum snjósleðamönnum
bannað að aka um golfvöllinn.
Félagar í GÍ hvetja hugsanleg vitni til að
gefa sig fram og eins þann eða þá sem olli skemmdunum. „Við höfum nú þegar heyrt
að ákveðnir einstaklingar voru að aka glæfralega um völlinn fyrir áramót og með
svona þunna snjóþekju hefur þeim tekist að valda mikilli eyðileggingu,“ segir Tryggvi.
Innlent »
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 7. september 2010, Innlent Gæsirnar þora ekki yfir rauðu línuna
- Miðvikudagur, 24. júní 2009, Innlent Gróðurskemmdir vegna utanvegaaksturs
- Miðvikudagur, 14. janúar 2009, Innlent Tryggvi: Gert að beiðni fyrirtækjasviðs Landsbankans
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“


































