Stillt upp hjá VG í Hafnarfirði

Uppstillingarnefnd mun gera tillögu að efstu frambjóðendum á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Á félagsfundi Vinstri grænna í Hafnarfirði var einróma samþykkt að standa þannig að vali á framboðslista, að því er segir í fréttatilkynningu.

Á fundinum var kosin uppstillingarnefnd sem mun bera upp tillögu að sex efstu frambjóðendum listans á fundi sem er áætlaður þann 1. febrúar næstkomandi.

Formaður uppstillingarnefndarinnar er Árni Stefán Jónsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert