Fréttaskýring: Reynt að semja um tilraunarekstur

Gert er ráð fyrir að Landeyjahöfn verði tekin í notkun 1. júlí í sumar. stækka

Gert er ráð fyrir að Landeyjahöfn verði tekin í notkun 1. júlí í sumar.

mbl.is Eftir Helga Bjarnason

Vegagerðin vonast til að fyrirkomulag siglinga til Vestmannaeyja, eftir að Landeyjahöfn verður tekin í gagnið 1. júlí næstkomandi, skýrist í þessum mánuði. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum segir erfitt að selja ferðafólki ferðir til Vestmannaeyja í sumar þegar ekki er vitað um ferðaáætlun og gjaldskrá.

Stefnt er að því að Landeyjahöfn verði tilbúin 1. júlí og að Herjólfur sigli þá þangað í stað Vestmannaeyja. Framkvæmdir við höfnina ganga vel og búið er að semja við verktaka um dýpkun og mannvirki inni í höfninni. Á næstunni verður samið við verktaka um byggingu aðstöðuhúss.

Eimskip annast rekstur Vestmannaeyjaferjunnar, samkvæmt samningi sem gildir út árið. Auður Eyvinds, forstöðumaður hagdeildar Vegagerðarinnar, segir að verið sé að reyna að ná samningum við Eimskip um breytingar á samningum og tilraunarekstur á ferjunni í nokkra mánuði.

Ekki hægt að bóka fyrir sumarið

Hjá Eimskip fengust þær upplýsingar að aðeins væri hægt að bóka í ferðir út júní. Guðmundur Pedersen rekstrarstjóri segir óvíst hvort Eimskip komi að rekstrinum eftir þann tíma og ekki hægt að lofa upp í ermina á þeim sem þá taka hugsanlega við.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að ferðafólk sýni Vestmannaeyjum vaxandi áhuga. Menn séu að búa sig undir að taka við 16 þúsund manns á þjóðhátíð. Þá sé goslokahátíð í byrjun júlí. Aukin flutningsgeta með siglingum til Landeyjahafnar muni ýta undir ferðaþjónustuna.

Hann segir því bagalegt að geta ekki svarað fyrirspurnum erlendra ferðaskrifstofa um ferðaáætlun skipsins, tíðni ferða og hvað farið eigi að kosta.

Þá segir Elliði erfitt að fá ekki upplýsingar um stöðu mála. Það tefji vinnu sem hefur verið í gangi í Vestmannaeyjum við að undirbúa samfélagið og greina ný tækifæri.

Flóknara en gert var ráð fyrir

Við útboð ríkisins á nýju skipi sem síðan var hætt við að láta smíða var gert ráð fyrir fimm ferðum að meðaltali á dag. Áætlað var að hafa sjö ferðir á dag á sumrin, fimm á haustin og vorin og fjórar á veturna. Þá var miðað við að farið myndi kosta 500 krónur fyrir fullorðna og þúsund krónur fyrir hvern bíl.

Kristján Möller samgönguráðherra segir málið flókið og erfiðara úrlausnar en gert hafi verið ráð fyrir.  „Við höfum verið að vinna að þessu töluvert lengi en hefðum viljað vera komin lengra.“

Segir Kristján að fyrstu tölur bendi til þess að kostnaður við siglingar milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja verði mun meiri en við núverandi samning. Ýmsir þættir hafi áhrif á það, til dæmis fjölgun ferða, mönnun skipsins, minni farþegatekjur og jafnvel eldsneytisnotkun.

„Það er unnið að málinu af fullum krafti. Í næstu viku verður fundur í ráðuneytinu þar sem farið verður yfir forsendur. Þá munum við gera okkur betur grein fyrir því,“ segir Kristján.

„Aðalatriðið er að þetta verður mikil samgöngubót. Þeir hnökrar sem verið hafa á málinu eru hluti af erfiðleikunum í samfélaginu,“ segir Kristján.

Hann reiknar með að rekstur Herjólfs verði boðinn út á haustmánuðum, nema þá verði búið að ná hagstæðum samningi fram á næsta ár.

Vantar skilning

„Við höfum fullan skilning á stöðu ríkisins,“ segir Elliði, en leggur um leið áherslu á að ekki megi gleymast hvað samgöngurnar séu mikilvægar fyrir Eyjamenn. „Vestmannaeyjar eru næst stærsti þéttbýliskjarni landsins, fyrir utan suðvesturhornið. Það gleymist oft hvað hér býr margt fólk og öflugt atvinnulíf. Það kallar á samgöngur. Okkur hefur fundist vanta skilning á stöðu okkar,“ segir Elliði Vignisson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ROTÞRÆR, VATNSGEYMAR OG ALVÖRU MOLTUGERÐ
Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþr...
FORD TAURUS SES 2002
FORD TAURUS SES 2002 Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumar...
20" barnareiðhjól til sölu
Til sölu 20" Mongoose Rockadille barnareiðhjól. Mjög vel með farið í toppstandi ...
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...