Segja um góðan fund að ræða

Fulltrúar flokkanna á þingi á fundi í Stjórnarráðinu í kvöld. stækka

Fulltrúar flokkanna á þingi á fundi í Stjórnarráðinu í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta var ágætur fundur. Það voru stigin skref á þessum fundi,“ segir Bjarni  Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, en fundi fulltrúa allra þingflokka, sem hófst í Stjórnarráðinu um kvöldmatarleytið, lauk fyrir skemmstu. Á fundinum var staðan í Icesave-málinu rædd. 

Að sögn Bjarna voru á fundinum kynnt drög að samkomulagi milli flokkanna um vinnuferli fyrir framhaldið. „Það er mikil óvissa sem ríkir í öllu framhaldi málsins, m.a. um vilja erlendu aðilana til þess að setjast aftur niður með okkur og ræða þessa stöðu sem upp er komin. En ég er orðinn vongóður um að okkur takist að setja ramma um það hérna heima fyrir hvernig við myndum vilja standa að þessu svona formlega séð og a.m.k. eitthvað lágmark á efnislegu hliðinni, þ.e.a.s. um hvað við vildum ræða.“

Aðspurður sagði Bjarni ljóst að áfram yrði unnið að undirbúningi fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. 

Í samtali við mbl.is sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, framkomna tillögu ríkisstjórnarinnar svipa mjög til þeirrar tillögu sem hann hafi sjálfur lagt fram 30. desember þegar greidd voru atkvæði um Icesave-lögin á þingi. Spurður hvað sé eins segir Sigmundur það snúast um hvernig menn nálgist nýjar viðræður, að því gefnu að Bretar og Hollendingar fallist á nýjar viðræður.

„Ég eins og stjórnarandstaðan öll tók vel í þetta. Auðvitað eru þetta bara drög þannig að það á eftir að fara yfir smáatriðin, en það er engin ástæða til að ætla annað en að það náist samstaða um þetta,“ sagði Sigmundur.

Sagði hann lykilatriði hvernig ríkisstjórn Íslands tali út á við. „Ég ítrekaði það sem ég hef nefnt áður að frumforsendan hlýtur að vera sú að ríkisstjórnin segi að við þurfum að gera betur og að samningarnir séu ekki sanngjarnir eins og þeir eru og að við þurfum að ná betri samningum. Á meðan ríkisstjórnin segir að þetta sé besta hugsanlega niðurstaðan þá fara Bretar og Hollendingar ekki að gera ágreining um það,“ sagði Sigmundur.

Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins var haft eftir Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, að fundurinn hafi verið góður og ráðgert væri að funda aftur á morgun. Sagði hann að rætt hefði verið á fundinum hvernig menn gætu tekið næstu skref í málinu og þróað samtöl og samstarf í málinu. 

Fundinn sátu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra,  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, Birgitta Jónsdóttir, formaður þinghóps Hreyfingarinnar og Þráinn Bertelsson, óháður þingmaður.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
Gallerí Voff -Hundaskóli sem skilar árangri í 20 ár
Gallerí Voff er eini hundaskólinn á landinu sem er viðurkenndur af umhverfisstof...
Babaria, snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
Til leigu 2-4 m sumarhús í Hvalfirði
Vel búin, gasgrill og heitur pottur. Frábært útsýni. Fjölbreytt afþreying í nágr...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...