Fækkað um 29 stöðugildi hjá RÚV
Samtals verður fækkað um 29 föst stöðugildi hjá RÚV. Sextán með beinum uppsögnum 17 starfsmanna og 13 með öðrum hætti. Til viðbótar fækkar fólki í verktöku og tímavinnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útvarpsstjóra.
Þá kemur fram að ýmsum þáttum, bæði í útvarpi og sjónvarpi, verði lagðir af. Öðrum verði breytt og kostnaður við þá skorinn niður. Auk þess verði beinum útsendingum sem tíðkast hafi frá ýmsum viðburðum verði hætt og stórlega dregið úr kaupum á efni af sjálfstæðum framleiðendum.
Tilkynningin er eftirfarandi.
„Í nýsamþykktum fjárlögum felst skerðing á rekstrarfé Ríkisútvarpsins um 420 milljónir króna á ári. Stærstur hlutinn – 357 milljónir – er vegna 10% skerðingar á tekjum fyrir almannaþjónustu og 63 milljónir vegna hækkunar tryggingagjalds. Nú standa yfir aðgerðir til að mæta þessum niðurskurði stjórnvalda.
Vegna þess hversu vel rekstur RÚV stendur um þessar mundir þarf ekki að skera hann niður sem nemur allri tekjuskerðingunni til að ná jafnvægi - heldur um 270 milljónir á ársgrundvelli, - en um 135 milljónir á yfirstandandi rekstrarári sem nú er tæplega hálfnað.
Óhjákvæmilegt er að skerða dagskrárþjónustu Ríkisútvarpsins verulega til að mæta þessum stjórnvaldsaðgerðum. Ýmsir þættir bæði í útvarpi og sjónvarpi verða lagðir af, - öðrum breytt og kostnaður við þá skorinn niður. Beinum útsendingum sem tíðkast hafa frá ýmsum viðburðum verður hætt og stórlega dregið úr kaupum á efni af sjálfstæðum framleiðendum.
Samtals verður fækkað um 29 föst stöðugildi hjá RÚV, - 16 með beinum uppsögnum 17 starfsmanna og 13 með öðrum hætti. Til viðbótar fækkar fólki í verktöku og tímavinnu.
Framangreindar aðgerðir koma til viðbótar miklum aðhaldsaðgerðum sem gripið var til í kjölfar hrunsins fyrir rúmu ári. Við þær aðgerðir lækkuðu rekstrarútgjöld RÚV um 16% eða um 700 milljónir króna á ársgrundvelli. Þegar áhrif þeirra aðgerða voru að fullu komin fram um mitt síðasta ár hafði taprekstri RÚV verið snúið í hagnað. Það skýrir svo aftur að yfirstandandi sparnaðaraðgerðir þurfa ekki að ganga eins langt og niðurskurður stjórnvalda á tekjum RÚV gæfi annars tilefni til.“
Bloggað um fréttina
-
Skúli Víkingsson Blankt RÚV sýnir beint -
Sigurður Jónsson Hvernig verður dagskráin hjá RUV? Seljum Rás 2. -
Sigríður Laufey Einarsdóttir "Skera glanspíurnar"
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Fréttaaukinn lagður af
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Innlent Starfsmönnum fækkar í háskólum
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Taprekstur RÚV tengist ekki þjónustusamningi
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Tíu-fréttir Sjónvarps styttar
- Föstudagur, 11. september 2009, Innlent Aldrei fleiri starfað í háskólum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































