Fékk yfir sig heitt vatn

Stúlka um tvítugt brenndist á hendi þegar yfir hana helltist heitt vatn í íbúð í Breiðholti í Reykjavík í hádeginu í gær. Hún var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar.

Um miðjan dag  í gær datt ung stúlka, sem var á skautaæfingu í Laugardal. Fékk stúlkan skurð á hökuna en henni var komið undir læknishendur.

Í nótt var kona á miðjum aldri flutt á slysadeild eftir að hafa dottið illa í heimahúsi í Breiðholti en óttast var að hún hefði farið úr axlarlið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert