Lottóvinningshafi kominn í leitirnar
Týndur lottóvinningshafi er kominn í leitirnar, en um er ræða rétt rúmlega fimmtugan fjölskylduföður sem vann rúmar fimm milljónir króna. Það tók hins vegar sinn tíma að hafa uppi á vinningshafanum, sem hafði fimm rétta í úrdrættinum þann 9. janúar sl.
Íslensk getspá sendi út tilkynningu í fjölmiðla fyrir síðustu helgi í þeim tilgangi að hafa uppi á vinningshafanum, sem hafði keypt miða í söluturninum Tröllinu í Spönginni í Reykjavík.
Tilkynningin skilaði tilætluðum árangri, því maðurinn hafði samband.
„Hann minnti að hann hefði keypt miða á þessum tiltekna sölustað en þar sem hann lá og las blaðið sitt á sunnudaginn nennti hann ekki að standa upp og gá í veskið sitt. Hann mundi svo aftur eftir miðanum þegar hann var að keyra eftir Breiðholtsbrautinni í gær og ákvað að hringja í Getspá til að athuga að gamni sínu hvort vinningsmiðinn væri fundinn og fékk þau svör að svo væri ekki,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
„Starfsmaðurinn spurði hvort hann væri með miðann í höndunum og bað hann að lesa upp númerið á honum. Það var slegið inn í kerfið og það var ekki um það að villast að þarna var „týndi“ miðinn kominn í leitirnar með vinningi upp á rúmlega 5 milljónir króna.
Starfsmaður sagði við manninn að það væri góður vinningur á miðanum og spurði hvort hann væri tilbúinn að fá fréttirnar. Það kom smá þögn í símann áður en maðurinn sagði: „bíddu aðeins, ég ætla að leggja bílnum fyrst“. Og það var eins gott að hann gerði það því að þessar fréttir komu honum virkilega á óvart og hann var góða stund að jafna sig á þeim fréttum að hann væri orðinn Lottómilljónamæringur.
Hann var ennþá hálf titrandi yfir fréttunum þegar hann kom í afgreiðslu Getspár seinna um daginn með miðann en var þó alveg búinn að ákveða að hann ætlar að njóta lífsins fyrir vinninginn – og kannski borga smá skuldir,“ segir í tilkynningu.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 17. desember 2009, Innlent Tveir unnu yfir 30 milljónir í Lottó
- Miðvikudagur, 6. maí 2009, Innlent Vinningshafar koma í leitirnar
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Föstudagur, 17. apríl 2009, Innlent Vinningsmiði fannst fyrir tilviljun
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































