Verðbólgan mælist 6,6%

Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar enda útsölur í flestum verslunum stækka

Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar enda útsölur í flestum verslunum mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,31% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði  um 0,03% frá desember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. Í desember mældist verðbólgan 7,5%.

Minnsta verðbólga í tvö ár

Verðbólgan hefur ekki mælst jafn lág í tvö ár, en í janúar 2008 mældist hún 5,8%. Að meðaltali var verðbólgan 12% á síðasta ári. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur ekki mælst jafn lítil síðan í apríl 2008 er hún var 10,6%. Á síðasta ári var hún að meðaltali 16,1%.

Fatnaður og skór lækkuðu um 10,1% og flugfargjöld um 21,3%

Vetrarútsölur eru í fullum gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,1% (vísitöluáhrif -0,63%) og verð á húsgögnum, heimilistækjum o.fl. lækkaði um 3,8% (-0,31%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,9% (-0,37%) og voru áhrif af lækkun markaðsverðs -0,33% en af lækkun raunvaxta -0,04%. Þá lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 21,3% (-0,21%).

Eldsneyti, áfengi og tóbak hækkaði

Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 5,7% (0,28%) og verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,3% (0,22%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 1,0% (0,14%). Þá hækkaði verð á rafmagni og hita um 4,3% (0,11%).

Vísitala neysluverðs á fastskattagrunni (virðisaukaskatti, áfengis- og tóbaksgjaldi, olíugjaldi og orkusköttum á rafmagn og heitt vatn haldið föstum miðað við desember 2009) lækkaði um 1,05% frá fyrra mánuði, að því er segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6,6% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,9%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,7% verðbólgu á ári (6,7% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Spáðu hækkun en raunin var lækkun

Greining Íslandsbanka spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,9% í mánuðinum en það hefði þýtt að verðbólga hækkaði úr 7,5% í 7,9%.

IFS Greining spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 1,3%. Ef spáin hefði gengið eftir myndi 12 mánaða verðbólga mælast 8,3%. 

Áfengis- og tóbaksgjald hækkaði um áramótin

Áfengis- og tóbaksgjald hækkaði um áramótin mbl.is/Heiðar Kristjánsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Tveir ökumenn voru í kvöld stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, annar ók á 136 km ...

Tekinn á 136 km hraða í kvöld

Í gær, 22:40 Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli voru tveir teknir fyrir of hraðan akstur í umdæminu í kvöld. Báðir ökumenn voru við Kirkjubæjarklaustur og ók annar þeirra á 136 km hraða. Meira »
Spákort sem sýnir veðurspá á miðnætti í kvöld.

Versnandi veður á fjallvegum

Í gær, 22:29 Versnandi veður verður á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina um leið og skil lægðar ganga yfir. Búast má við hviðum allt að 30-40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfalli frá því um kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nóttina. Meira »

Tilkynnti úrsögn úr félaginu

Verðlaunaafhending Félags kvenna í atvinnurekstri á dögunum.
Í gær, 21:18 Dominique Plédel, rekstraraðili Vínskólans, hefur sagt sig úr Félagi kvenna í atvinnurekstri í mótmælaskyni. Framkvæmdastjóri félagsins staðfestir úrsögnina, en segir að lítið sé um úrsagnir undanfarna daga. Meira »

Munu skoða lífeyrissjóðina

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Í gær, 21:08 Embætti sérstaks saksóknara mun ræða skýrsluna um lífeyrissjóðina, sem birt var í dag, á næsta fundi sínum með Fjármálaeftirlitinu. Sérstakur saksóknari segir þó of snemmt að segja til um það hvort hún gefi tilefni til rannsóknar hjá embættinu. Meira »

RÚV vann verðlaun

Merki RÚV.
Í gær, 19:27 Vefur RÚV, ruv.is, var valinn besti afþreyingar- og fréttavefurinn af Samtökum vefiðnaðarins í kvöld. Í úrskurði dómnefndar segir að vefurinn sé tæknilega vel útfærður og aðgengilegur og að fáir vefir standi jafnfætis ruv.is þegar komi að efnismiklu og fjölbreyttu innihaldi. Meira »

Grindavík vann

Lið Grindavíkur í Útsvari 2012.
Í gær, 21:16 Grindavíkurbær fór með sigur af hólmi í Útsvari í kvöld í keppni sinni við Skagafjörð. Vinningsliðið var með 110 stig, en Skagfirðingar með 57 stig. Meira »

Mikill skákáhugi hjá stúlkum

Í gær, 20:39 Milli 60 og 70 stúlkur taka þátt í Íslandsmóti grunnskólasveita, stúlknaflokki, sem fram fer í Rimaskóla á morgun, laugardaginn 4. febrúar. Nú eru fimmtán sveitir skráðar til leiks, mun fleiri en á síðasta ári. Meira »

Fíkniefni fundust í Þorlákshöfn

Lögreglustöðin á Selfossi.
Í gær, 18:57 Fíkniefni fundust við húsleit í Þorlákshöfn í dag, skv. upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Um var að ræða 1-2 grömm af kannabisefnum og tvö grömm af amfetamíni. Meira »

Margir aka á strætórein

Í gær, 18:30 Töluvert er um að ökumenn virði ekki lög um notkun akbrauta, en þau kveða m.a. á um að þar sem sérstakar reinar eru fyrir mismunandi tegundir ökutækja skuli ökumaður nota þá rein, sem ökutæki hans er ætluð. Meira »

Eldfjall fær 13 tilnefningar

Edduverðlaunin
Í gær, 18:03 Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2012 hafa verið kunngjörðar og verða verðlaunin afhent í Gamla bíói 18. febrúar. Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall, er tilnefnd til 13 verðlauna. Meira »

PIP-fyllingar verði fjarlægðar

PIP-sílikonbrjóstapúðar
Í gær, 18:15 Landlæknir telur að fjarlægja eigi PIP-brjóstafyllingar úr þeim íslensku konum sem þær bera. Þetta var ákveðið eftir að sérfræðingahópur skilaði skýrslu um fyllingarnar. Landlæknir segir að um sé að ræða falsaða púða. Meira »

Varnarlaus gagnvart kúlulánum

Skýrslan var kynnt í dag.
Í gær, 17:57 Lífeyrissjóðirnir sem keyptu skuldabréf fyrirtækja gátu ekki komið við neinum vörnum þó rekstrarforsendur fyrirtækja eða eiginfjárhlutfall breyttust verulega. Ástæðan er sú að engir skilmálar voru bréfunum að sjóðirnir gætu gjaldfellt bréfin. Meira »

„Erum að sigla í rétta átt“

Ómar Stefánsson.
Í gær, 17:50 „Þetta mjakast og kemur vonandi allt í ljós um helgina,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi, en viðræður bæjarfulltrúa Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Y-lista Kópavogsbúa hafa staðið yfir síðan í gær. Meira »

Verðum að læra af reynslunni myndskeið

lifeyrir hallur
Í gær, 17:32 Arnar Sigurmundsson, formaður Landssambands lífeyrissjóða, vonast til þess að hægt verði að draga lærdóm af skýrslunni um starfsemi sjóðanna á árunum fyrir hrun sem lögð var fram fyrr í dag. Hann hafði ekki séð skýrsluna fyrr en í dag en hann sagði hana ekki hafa komið verulega á óvart. Meira »

Var þörf á gjaldeyrisvörnum?

Nefndarmenn kynntu skýrsluna um lífeyrissjóðina í dag.
Í gær, 17:29 Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor segist ekki sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun hjá lífeyrissjóðunum að gera gjaldeyrisvarnasamninga við bankana, en sjóðirnir töpuðu miklum fjármunum á þeim. Meira »

Festu bíla á Nesjavallavegi

Merki Landsbjargar
Í gær, 17:41 Þrír hópar úr björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið til aðstoðar ökumönnum sem fest hafa bíla sína. Um er að ræða þrjár bifreiðar, tvær á Nesjavallavegi og eina við Stardal á Mosfellsheiði. Meira »

Gestirnir fóru út með áfengið

Í gær, 17:29 Fyrr í vikunni stöðvaði lögreglan sölu áfengis á tveimur veitingahúsum í miðborginni eftir að komið var fram yfir leyfðan afgreiðslutíma en á öðru þeirra voru gestir staðarins jafnframt að bera með sér áfengi út af staðnum. Meira »

Luna fann marijúana

Fíkniefni fundust í Herjólfi í dag.
Í gær, 17:22 Fíkniefnahundurinn Luna komst á snoðir um kannabisefni um borð í Herjólfi í dag. Efnin voru í bíl og voru eigandi bílsins og ökumaður réttindalausir. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Suzuki Grand Vitara aðeins ekin 47000 km
Til sölu mjög góð og vel útlitandi Grand Vitara árgerð 2005 ekin aðeins 47000 km...
Ný föt, ódýr föt - netverslunin fallegfot.is
Mikið úrval af ódýrum fatnaði, fáum nýjar sendingar reglulega :) kíktu á http...
LAGERHREINSUN
LAGERHREINSUN - 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM - GERIÐ FRÁBÆR KAUP - http://www.12...
Toyota Landcruser
Toyota Landcruser árg. 2003 GX Ekinn 120þ km 35" breittur góð dekk, skipti ódýra...
 
Sýslumaðurinn á patreksfirði - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....