Vikið úr formannsembætti

Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar. stækka

Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar. mbl.is/ÞÖK

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra hefur vikið Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi alþingismanni, úr sæti formanns Flóttamannanefndar ríkisins og skipað Mörð Árnason í hennar stað, að sögn Guðrúnar.

 Guðrún var skipuð formaður árið 2007 en þá var Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. ,,Ég fékk að vita í september í fyrra að lækka ætti launin fyrir formannsstarfið, 40 þúsund á mánuði, í átta þúsund," segir Guðrún. ,,Ég mótmælti þessu og spurði hvort það væri nú reglan að lækka laun nefndarformanna um 80%, þetta er reyndar eina launaða starfið hjá nefndinni."

 Hún segist ósátt við vinnubrögð ráðherra í málinu en Guðrún fékk tíðindin í bréfi frá ráðuneytinu í dag. Erfitt sé að trúa því að launin hafi verið það sem réði úrslitum, líklegra sé að ráðherra hafi viljað hygla Merði Árnasyni. En hún viti ekki hvort Mörður sætti sig við átta þúsund á mánuði. Ekki náðist í félagsmálaráðherra sem mun vera erlendis.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ýmsar verur klífa nú Hallgrímskirkju í magnaðri ljósasýningu.

Böðuð ljósi og litum

20:52 Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes. Meira »
Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.

Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

20:10 54% Íslendinga vilja að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér sem forseti landsins. Þetta sýnir ný könnun sem sagt var frá í fréttum Stöðvar tvö í kvöld. Meira »

Hundrað þúsund meira í bensínskatt

19:04 Venjuleg fjölskylda greiðir ríkinu hundrað þúsund krónum meira á ári í bensínskatta nú en fyrir fjórum árum. Sá hluti kaupverðsins sem olíufélögin fá til sín hefur hækkað um 87% á sama tíma. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Meira »

„Þjóðin valdi okkur“

Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar ...
18:31 „Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær. Meira »

Gæslan bíður eftir skýrslu

Þór á siglingu.
17:56 Sérfræðingar á vegum Rolls Royce reyna nú að finna orsök bilunar í nýju varðskipi Landhelgisgæslu Íslands sem kom til hafnar í Bergen í Noregi sl. miðvikudagskvöld. Meira »

„Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“

Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir, þingmenn Hreyfingarinnar, eru meðal þeirra sem stofna Breiðfylkinguna.
18:57 „Mér finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, eftir fyrri stofnfund nýju hreyfingarinnar sem gengur undir vinnuheitinu Breiðfylkingin. Hún var spurð að því hvort ekki kæmi til greina að nýju stjórnmálaöflin sem fram hafa komið að undanförnu gætu boðið fram saman. Meira »

Blár ópal fékk flest atkvæði

Kristmundur Axel Kristmundsson, syngur með Bláum ópal í Hörpu í gærkvöldi.
18:16 Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér. Meira »

Vilja nýtt kúakyn til Íslands

Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur eitt stærsta kúabú landsins í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17:49 Bændurnir í Gunnbjarnarholti og á Skáldabúðum vilja flytja inn nýtt kúakyn til landsins sem allra fyrst. Arnar Bjarni Eiríksson, sem rekur bæði búin ásamt konu sinni Berglindi Bjarnadóttur, segir nýtt kúakyn vera forsendu þess að kúabændur geti þróað mjólkurframleiðslu sína. Meira »

Ók á ljósastaur

17:29 Umferðaróhapp varð á Laugarnesvegi um kl. 14 í dag. Lögreglan fór á staðinn en ökumaður bifreiðarinnar hafði ekið á ljósastaur. Enginn slasaðist en bíllinn er skemmdur og óökuhæfur. Var hann fjarlægður af slysstað með kranabifreið. Meira »

Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum

Magni Ásgeirsson söng lag Sveins Rúnar, Hugarró, af mikilli innlifun.
16:12 Síðustu vikurnar hefur lagahöfundurinn Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átti tvö lög í úrslitakeppni Söngvakeppni sjónvarpsins í gærkvöldi, starfað við lækningar á Heilsugæslunni í Árbæ á daginn og sinnt undirbúningi Evróvisjón á kvöldin. Meira »

Hundur fastur í neti

Hundur af border collie-kyni.
17:13 Lögreglan fékk í morgun tilkynningu um hund sem var fastur í netadræsum við Ægisgarð. Lögregla og tækjabíll frá slökkviliði fór á vettvang. Búið var að bjarga hundinum úr netunum og var hann frekar þjakaður en glaður björguninni. Meira »

Mikið annríki á Læknavaktinni

15:33 Mikið annríki hefur ríkt á Læknavaktinni um helgina, og nánast stöðugur straumur fólks. Sökum þessa hefur biðtími lengst og kalla þurfti út lækna bæði í gær og í dag. Upplýsingar um hvað helst er að hrjá landann liggja þó ekki fyrir. Meira »

Nálgast 30.000 undirskriftir

Skorað er á forsetann að gefa áfram kost á sér til embættis.
15:19 Undirskriftum fjölgar enn á vefsíðunni Áskorun til forseta þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að gefa áfram kost á sér til embættis í komandi forsetakosningum. Meira »

Bæta við strætóferðum á Suðurlandi

Mjóddin er upphafs- og endastaður Suðurlandsstrætósins.
15:10 Frá og með deginum í dag verða gerðar nokkrar breytingar á akstri Strætó bs. á Suðurlandi. M.a. verður bætt við hádegisferð frá Reykjavík á Selfoss og til baka til Reykjavíkur, tekinn upp akstur í Reykholt og bætt við ferð frá Vík til Hafnar á þriðjudögum. Meira »

Nefbrotinn eftir árás

Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl.
15:04 Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala snemma í morgun eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu sagðist maðurinn hafa orðið fyrir árás tveggja manna sem hann kunni ekki deili á, ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim. Maðurinn er talinn nefbrotinn. Meira »

Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna

Ásta Hlín Magnúsdóttir
15:18 Ásta Hlín Magnúsdóttir var í dag kjörin nýr formaður Sambands ungra framsóknarmanna. Ásta Hlín fékk 32 atkvæði eða 53%. Mótframbjóðandi hennar, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, fékk 28 atkvæði eða 47%. Meira »

Gæði röntgenmynda margfaldast

Lesið úr röntgenmyndum á Landspítalanum í Fossvogi. Mynd úr safni.
15:06 Tekinn hefur verið í notkun stafrænn búnaður til framköllunar á röntgenmyndum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Þessi nýju tæki koma í stað gamalla tækja sem voru úr sér gengin og nær ónýt. Meira »

17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló

14:50 Þær voru duglegri að mjólka í fyrra, kýrnar í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu, en árið á undan. Í fyrra mjólkuðu sautján kýr yfir 10 þúsund kíló en árið 2010 voru þær aðeins fimm. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fallegur búrskápur til sölu
Er ósamansettur. Mikil geymsla. Hornskápur í frönskum sveitastíl eins og innrétt...
Vaskur í baðherbergi - klassískur
Hvítur klassískur vaskur, með blöndunartækjum, í baðherbergi til sölu. Sanngjarn...
SÓFABORÐ - ANTIK SÓFABORÐ TIL SÖLU
ER MEÐ FALLEGT SÓFABORÐ Á 35 ÞÚS. SÍMI 869-2798...
HARMONIKKUHURÐIR - FELLIHURÐIR
Bæði með og án glugga. Hringdu inn málin, hurðin getur verið tilbúinn samdægurs....
 
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
Vélvirki starf í noregi
Iðnaðarmenn
Vélvirki Starf í Nore...
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi Amen,föstudagur kl. 21Lifan...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Framhald uppboðs á...