Fimm sækja um á Selfossi
Fimm umsækjendur eru um embætti prests í Selfossprestakalli, Suðurprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út á mánudag. Embættið veitist frá 1. mars 2010.
Umsækjendur eru: Ása Björk Ólafsdóttir, Óskar Hafsteinn Óskarsson, Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, Stefán Einar Stefánsson og Þráinn Haraldsson.
Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Suðurprófastsdæmis.
Samþykkt var á almennum safnaðarfundi á Selfossi á sunnudag að krefjast þess af biskupi, að presti sem taka á til starfa í Selfossprestakalli verði falið að stýra og bera ábyrgð á öllu kirkjustarfi í Selfosskirkju. Ágreiningur var um tillöguna en hún samþykkt með 64 atkvæðum gegn tíu.
Þar sem fleiri en einn prestur starfa innan sömu sóknar skal, samkvæmt starfsreglum, verkaskipting fara fram undir forystu sóknarprests. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknarprestur í Selfossprestakalli, á ekki von á öðru en svo verði áfram. Lög og starfsreglur kveði á um ábyrgð sóknarpresta og hann segist ekki skorast undan þeim skyldum. Hann beri ábyrgð á starfi sem fram fer í kirkjum prestakallsins.
Fjölmenni var á safnaðarfundinum sem var boðaður vegna nýlegrar sameiningar Selfossprestakalls og Hraungerðisprestakalls. Hart var deilt á hvernig sú sameining kom til, en hún var ákveðin á kirkjuþingi í nóvember síðastliðnum.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 10. febrúar 2010, Innlent Sr. Óskar valinn á Selfossi
- Þriðjudagur, 18. ágúst 2009, Innlent Þrír sækja um Kolfreyjustaðarprestakall
- Þriðjudagur, 1. september 2009, Innlent Átta sóttu um prestsembætti í Hafnarfirði
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Sex sækja um brauð á Akureyri
- Föstudagur, 26. júní 2009, Innlent Þrír sækja um Hafnarfjarðarprestakall
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































