Ísbjörninn ófundinn
„Við misstum sjónar af honum. Það gerði leiðinda él og misstum hann hérna yfir ána og erum að leita að honum,“ segir lögregluvarðstjórinn Jón Stefánsson í samtali við mbl.is. Hann leitar nú að ísbirni sem sást í Þistilfirði um kl. 13:15 í dag.
Íbúar á bænum Sævarlandi við Þistilfjörð sáu björninn og höfðu samband við neyðarlínuna. Að sögn Jóns er björninn lítill, en hann hefur sjálfur séð dýrið. „Hann hljóp bara eftir veginum,“ segir Jón, sem ók á eftir dýrinu.
„Það er náttúrulega hætta þegar svona er á ferðinni,“ segir Jón aðspurður. „Hann var hræddur og það er verra ef þetta er hrætt.“
Hann bindur vonir við að finna dýrið fljótlega, en myrkur mun skella á eftir um klukkustund.
Íbúar í Sævarlandi eru óhultir. Þau sögðu í samtali við mbl.is að dýrið væri hálf ræfilslegt.
Þrjár skyttur eru komnar á svæðið til að fella dýrið.
Á vef Umhverfisstofnunar segir, að unnið sé að viðbrögðum í samráði við lögreglu og önnur yfirvöld. Mat lögreglu á aðstæðum sé, að nauðsynlegt sé að fella björninn við fyrsta tækifæri og taki Umhverfisstofnun undir það.
Niðurstaða starfshóps um viðbrögð við landgöngu hvítabjarna sem skipuð var í kjölfar landgöngu tveggja hvítabjarna árið 2008 var fella beri hvítabirni sem ganga á land. Fyrir því eru þrenn meginrök, í fyrsta lagi öryggissjónarmið, í öðru lagi stofnstærðarrök og í þriðja lagi kostnaður við björgunaraðgerðir. Til þess að reyna björgun þurfa að vera ákjósanlegar aðstæður, s.s. að fólki standi ekki hætta af, skyggni sé gott og tryggt sé að dýrið sleppi ekki út í vatn eða sjó.
Umhverfisstofnun segir, að aðstæður í Þistilfirði séu ekki ákjósanlegar til þess að reyna björgun.
Innlent »
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Búið að skjóta ísbjörninn
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Tilkynnt um ísbjörn
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Hvítabjörninn var 4 ára birna
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Björninn felldur
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Dauður höfrungur á land
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































