Tekið undir með brunamálastjóra um lágmarksviðbúnað
Frá Reykjavíkurflugvelli.
Á sameiginlegum fundi í vikunni með fulltrúum stjórnar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) með stjórn deildar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) og stjórnar deildar LSS á Keflavíkurflugvelli var tekið undir túlkun brunamálastjóra um lágmarksviðbúnað á flugvöllum í landinu. Tilefnið er að slökkviliðið lýkur störfum á Reykjavíkurflugvelli 1. mars nk. en deilur hafa verið á milli slökkviliðsmanna og Flugstoða.
Í kjölfar þessa fundar samþykkti stjórn LSS stutta ályktun þar sem segir að öryggi allra sem fara um flugvelli og nágrenni þeirra sé best tryggt með því að löggiltir slökkviliðsmenn sinni þar slökkvistörfum.
Samningur SHS og Flugstoða um sólarhringsvakt slökkviliðsmanna á Reykjavíkurflugvelli rennur út 1. mars nk. Flugstoðir munu þá taka við viðbúnaðarþjónustu á vellinum. Vegna fyrirhugaðrar sameiningar Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf. hafa fyrirtækin gert með sér samning vegna þjónustu á Reykjavíkurflugvelli. Í því samkomulagi felst að slökkviliðsmenn frá Keflavíkurflugvelli munu sinna viðbúnaðarþjónustu á flugvellinum en undir stjórn Flugstoða.
Samkvæmt upplýsingum frá LSS verður um tvo slökkviliðsmenn að ræða en slökkviliðsmenn og SHS telja að minnst fjórir atvinnuslökkviliðsmenn verði að vera á vakt hverju sinni á flugvelli af þessari stærð. Vísað er til bréfs brunamálastjóra til SHS þann 17. desember sl. Þar telur brunamálastjóri eðlilegt að gerðar séu svipaðar kröfur á flugvöllum hér á landi líkt og á Norðurlöndunum, þ.e. um menntun björgunaraðila, þjálfun, lágmarksfjölda, hlífðarfatnað, reykköfunartæki og annan útbúnað.
„Dæmigerðar kröfur eru að slökkviliðsmenn skulu menntaðir við brunamálaskóla hvers lands fyrir sig (eða við sambærilegan skóla), minnst 3 menn og vaktstjóri skulu vera á vakt, björgunaraðilarnir skulu vera menntaðir reykkafarar og geta uppfyllt heilbrigðiskröfur sem því tengjast, svo að örfá atriði séu nefnd," segir m.a. í bréfi brunamálastjóra til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Deilt um hvaða lög eigi að gilda
Deilt hefur verið um það m.a. hvort lög um brunavarnir eigi að gilda á flugvöllum. Flugmálastjórn hefur ekki talið svo vera, heldur gildi þar lög um loftferðir og flugvelli. Brunamálastofnun og umhverfisráðuneytið hafa verið annarar skoðunar, og bent m.a. á að með athugasemdum við frumvarp um lög um brunavarnir komi skýrt fram að lögin skuli gilda um flugvallarslökkvilið.





































