Skuldbreyting lækki greiðslubyrði um 407 milljónir

Bæjarstjórn Álftaness á fundi. stækka

Bæjarstjórn Álftaness á fundi. Kristinn Ingvarsson

Í skýrslu, sem meirihluti bæjarstjórnar Álftaness hefur afhent eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins, er m.a. lagt til að leitað verði eftir samningum við Arion banka um að endurfjármagna yfirdrátt og öll lán með einu langtímaláni. Við þetta myndi greiðslubyrði af lánum minnka um 407 milljónir á þessu ári.

Skýrslan var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi og afhent eftirlitsnefndinni í dag. Í skýrslunni kemur fram, að þrátt fyrir tillögur um hagræðingu í rekstri og skuldbreytingar lána og niðurfellingu skuldbindinga geti sveitarfélagið ekki skilað hallalausum rekstri eða staðið við skuldbindingar sínar.

Heildarskuldir sveitarfélagsins voru í árslok 2009 voru um 3 milljarðar króna og þar af eru skammtímaskuldir og eingreiðslulán upp 1,2 milljarða króna. Uppgreiðsluverð allra lána og yfirdráttur hjá bankanum þann 31 desember var 663 milljónir króna.

Lagt er til í skýrslunni, að leitað verði eftir samningum við Arion banka um að endurfjármagna yfirdrátt og öll lán með einu langtímaláni til 23 ára og fyrstu þrjú árin verði eingöngu greiddir vextir.

Auk yfirdráttar að fjárhæð 101 milljón króna er Álftanes með 15 lánasamninga en lánin voru tekin á tímabilinu 1996 fram í ágúst 2009. 10 lánanna eru í erlendri mynt og bera breytilega vexti sem um s.l. áramót voru bilinu 1,05% - 2,70%. 5 lánanna eru í íslenskum krónum. Tvö þeirra eru verðtryggð og bera 5,56% -5,65% fasta vexti. 3 lánanna eru óverðtryggð með 9,5%-11,75% vöxtum. Þessi lán eru með einn gjalddaga á vormánuðum 2010. Uppgreiðsluverð þessara þriggja eingreiðslulána er um 200 milljónir króna.

Miðað við óbreytta stöðu er greiðslubyrði Álftaness af lánum á þessu ári rúmar 443 milljónir króna en verður 40 milljónir með skuldbreytingu.

Í skýrslunni segir, að þrátt fyrir tillögur um hagræðingu í rekstri og skuldbreytingar lána og niðurfellingu skuldbindinga við félögin Búmenn og Ris, geti sveitarfélagið ekki skilað hallalausum rekstri eða staðið við skuldbindingar sínar. Sveitarfélagið þurfi því annað hvort að að tryggja sér framlög frá ríkissjóði eða selja eignir til þess að  gera sveitarfélagið hæft til sameiningar við annað sveitarfélag.

Segir að til þess að losna undan skuldbindingum við Eignarhaldsfélagið Fasteign þurfi að lágmarki 1,9 milljarða króna til þess að kaupa eignirnar sem samningur við félagið nær til. 

Skýrsla meirihluta bæjarstjórnar Álftaness

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Sonata 2008 sjálfskiptur til sölu ekinn 77.000 km.
Svartur glæsilegur Hyundai Sonata árg. 2008, sjálfsk. til sölu. Dekurbíll, vel v...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
Mjög góð og lítið notuð, Lítur út eins og ný, Fæst á aðeins 15000. ef tekin e...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
TRAVEL LITE HÚSIN
Travel Lite Húsin eru í mörgum stærðum og henta á...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...