Vilja reisa Krýsuvíkurkirkju á ný
Vinafélag Krýsuvíkurkirkju var stofnað nýlega og er markmið félagsins að gangast fyrir endurbyggingu kirkjunnar í samræmi við upprunalegt útlit samkvæmt heimildum þjóðminjavörslu um útlit, innviði, handbragð og efnivið. Kirkjan brann á nýársnótt.
Skipuð var bráðabirgðastjórn sem starfar fram að fyrsta ársfundi félagsins næsta haust. Sérstök verkefnisstjórn verður skipuð innan skamms sem mun annast allt sem snýr að smíði kirkjunnar. Verkefnið nýtur velvilja Þjóðminjasafnsins, Þjóðkirkjunnar, Húsafriðunarnefndar, Hafnarfjarðarbæjar og annarra aðila sem tengdust kirkjunni í Krýsuvík.
Iðnskólinn í Hafnarfirði hefur boðist til að byggja kirkjuna á næstu tveimur árum á lóð skólans og verður hún flutt á sinn stað að smíðinni lokinni. Smíði kirkjunnar verður liður í að kenna nemendum skólans rétt handbrögð og vinnulag við smíði húsa af gamalli gerð. Verkið verður unnið samkvæmt ítrustu kröfum undir faglegri handleiðslu sérfræðinga sem hafa mikla reynslu á þessu sviði.
Áætlað er að kostnaður við smíði kirkjunnar verði um 9 milljón króna og má reikna með að efniskaup og annar tilfallandi kostnaður nemi helmingi þeirrar fjárhæðar og að framlag Iðnskólans jafnist á við þann hluta.
Þeir sem vilja gerast stofnfélagar Vinafélags Krýsuvíkurkirkju geta gert það með því að leggja 1500 krónur stofnframlag inn á söfnunarreikning félagsins í Íslandsbanka nr. 545-14-402800, kt. 620110-1160, fram til 27. febrúar næstkomandi. Færist þá nafn viðkomandi inn á lista yfir stofnendur Vinafélagsins. Þeim sem vilja styrkja verkefnið með hærra fjárframlagi er frjálst að gera það með sama hætti.
Stofnskrárbók Vinafélags Krýsuvíkurkirkju liggur frammi í Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju og þar geta þeir sem vilja skrá sig með eigin hendi í bókina gert það.
Bráðabirgðastjórn Vinafélags Krýsuvíkurkirkju skipa: Jónatan Garðarsson formaður, Sigurjón Pétursson varaformaður, Erna Fríða Berg gjaldkeri, Björn Pétursson ritari, Sveinn Sveinsson meðstjórnandi. Varastjórn skipa: Þórhallur Heimisson, Gunnþór Ingason og Jóhannes Einarsson.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Þriðjudagur, 12. maí 2009, Innlent Gamla Ísafjarðarkirkjan umflotin vatni
- Laugardagur, 17. janúar 2009, Innlent Stefnt að endurreisn Eyrarkirkju
- Fimmtudagur, 5. febrúar 2009, Innlent Gylfi skipar nýja stjórn FME
- Fimmtudagur, 28. október 2010, Innlent Kynferðisbrot ekki liðin í starfi kirkjunnar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































