Greiði Straumi 1,5 milljarða
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt kaupsýslumanninn Magnús Þorsteinsson og félagið BOM fjárfestingar, til að greiða Straumi 1,54 milljarða króna.
Málið er vegna rúmlega eins milljarðs króna láns, sem BOM fjárfestingar tóku hjá Straumi árið 2005 til að kaupa 5% hlut í Icelandic Group. Hlutabréfin í Icelandic Group voru sett að veði og að auki fékk Straumur handveðsrétt í öllu hlutafé BOM fjárfestinga. Í stjórn BOM voru þá Baldur Guðnason og Steingrímur Pétursson, en þeir voru einnig í stjórn Fjárfestingafélagsins Sjafnar, sem var eignaraðili hins stefnda einkahlutafélags.
Árið 2006 krafðist Straumur aukinna trygginga fyrir láninu og gerðist Magnús Þorsteinsson þá sjálfskuldarábyrgðaraðili fyrir skuldbindingum BOM fyrir allt að 930 milljónum króna.
Straumur gerði á ný veðkall árið 2008 en þá höfðu bréf Icelandic Group verið skráð úr Kauphöll Íslands og þau orðin nánast verðlaus. Gjaldfelldi Straumur síðan lánið í september og krafðist þess að Magnús greiddi það í samræmi við sjálfsskuldaryfirlýsinguna.
Undir miklum þrýstingi
Magnús bar m.a. fyrir dómi, að þegar hann gekkst undir ábyrgðinahafi Straumur beitt hann miklum þrýstingi en auk þess fullvissað hann um og eða lofað, að aldrei kæmi til þess að reyna myndi á skuldbindingu hans.
Magnús sagðist sjálfur ekki hafa átt neinna hagsmuna að gæta, en hann hafi hvorki verið tengdur BOM fjárfestingum né haft nokkurn fjárhagslegan ávinning af því að gangast í ábyrgðina. Hann hafi ráðist í þetta af greiðasemi við Straum gegn fyrrnefndu loforði.
Héraðsdómur hafnaði þessum staðhæfingum og sagði þær ósannaðar. Magnús hélt því einnig fram, að Straumur hefði valdið sér tjóni með saknæmum hætti. Um það segir dómurinn að Magnús hefði þekkt vel til bágrar fjárhagsstöðu BOM fjárfestinga þegar hann ritaði undir sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsinguna. Það liggi fyrir, að fáeinum vikum fyrir undirritunina hafði félag sem að langstærstum hluta var í eigu Magnúsar en skráð erlendis, keypt BOM. Þá liggi fyrir, að Magnúshafi verið í miklu sambandi við sérfróða ráðgjafa í öllum viðskiptum sínum við Straum.
„Að áliti dómsins verður við úrlausn þessa álitaefnis heldur ekki horft framhjá þeirri áralöngu reynslu af viðskiptum sem (Magnús) hefur sjálfur lýst fyrir dómi," segir m.a. í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra.
Er niðurstaðan sú, að BOM fjárfestingar greiði Straumi 1,54 milljónir ásamt dráttarvöxtum en þar af er Magnús dæmdur til að greiða Straumi 930 milljónir króna með 20% vöxtum frá janúar 2008 auk dráttarvaxta.
Björgólfur Thor Björgólfsson var stjórnarformaður Straums. Hann átti ásamt Magnúsi og Björgólfi Guðmundssyni eignarhaldsfélagið Samson, sem keypti ráðandi hlut í Landsbankanum árið 2002.
Bú Magnúsar Þorsteinssonar var á síðasta ári tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Straums.




































