Ríkið sýknað af kröfu Glitnis

stækka

Friðrik Tryggvason

Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfu Glitnis um að felldur verði úr gildi úrskurður ríkisskattstjóra frá árinu 2006 að hækka opinber gjöld bankans um 589 milljónir króna. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður fallist á kröfu bankans.

Málið á rætur að rekja til þess að Glitnir, sem þá hét Íslandsbanki hf., keypti í desember 2003 alla hluti í Framtaki fjárfestingarbanka af Fjárfestingarfélaginu Straumi fyrir samtals 5,5 milljarða króna í reiðufé. Í kjölfarið voru bankinn og Framtak sameinuð.

Glitnir lagði til grundvallar  í skattskilum vegna ársins 2004 að allar eignir og skuldir Framtaks hefðu við samrunann færst til sín á svokölluðu skattalegu bókfærðu verði og hefði hann jafnframt nýtt yfirfæranlegt rekstrartap þess félags til frádráttar skattskyldum tekjum sínum.

Ríkisskattstjóri hafnaði þessu og miðaði við að  Framtaki hefði verið slitið án þess að um sameiningu félagsins við Íslandsbanka hefði verið að ræða. Af þeim sökum hefðu myndast hjá félaginu tekjur vegna söluhagnaðar á árinu 2004, sem svöruðu til mismunar á markaðsverði eigna þess í kaupum Glitnis annars vegar og skattalegu bókfærðu verði eignanna hins vegar, en frá þeirri fjárhæð kæmi til frádráttar yfirfæranlegt rekstrartap félagsins. Þá var ákveðið að leggja 25% álag á vantaldar tekjur félagsins.

Af þeim sökum hækkaði tekjuskattstofn Glitnis auk þess sem ríkisskattstjóri ákvað að bæta 25% álagi við þá fjárhæð. Með þessu voru opinber gjöld Glitnis vegna gjaldársins 2005 hækkuð um samtals 589.073.851 krónu, sem hann greiddi með fyrirvara.

Bankinn höfðaði mál til að fá úrskurði ríkisskattstjóra hnekkt. Glitnir vann málið í héraði en Hæstiréttur hafnaði því, að ríkisskattstjóri hefði ranglega beint að Glitni meðferð máls um endurákvörðun gjalda Framtaks og að óheimilt hefði verið að leggja á Glitni tekjuskatt, sem ríkisskattstjóri taldi að Framtaki hefði borið að greiða.

Þá var ekki fallist á að neinir þeir gallar hefðu verið á málsmeðferð ríkisskattstjóra, sem valdið gætu ógildingu úrskurðarins.

Hæstiréttur taldi hafið yfir allan vafa, að Glitnir hefði ákveðið að sameinast Framtaki áður en hann keypti alla hluti í því félagi gegn greiðslu í reiðufé. Af þessum sökum var talið að ekki væri fullnægt skilyrðum laga til að haga skattskilum Glitnis og Framtaks vegna gjaldársins 2005 á annan veg en ákveðið var í úrskurði ríkisskattstjóra. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
Til sölu Harley Davidson Electra Glide 2005
Ekið 6000 mílur mikið af aukahlutum Upplýsingar í s 898-9543...
NISSAN ALMERA ACENTA
Nissan Almera Acenta, 09/2005, ekinn 97 þús. Ssk., nýtt ...
 
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...