Skyndilokanir og áminningar
Varðskipsmenn á Ægi fóru um borð í tuttugu og tvö skip og báta í síðustu eftirlitsferð skipsins 7. - 26. janúar. Mælingar á afla voru undir viðmiðunarmörkum í sex bátum og leiddi það til fjögurra skyndilokana. Þrír skipstjórar áminntir þar sem ekki voru haffæris- eða réttindaskírteini um borð.
Auk þess var ein kæra var gefin út þar sem enginn stýrimaður var í áhöfn, samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar.
Í ferðinni var einnig skipt um öldumælidufl út af Kögri. Duflið kom um borð í Ægi með Líf þegar haldin var fyrsta æfing skipsins með HIFR- búnað. Hann er notaður er til eldsneytistöku þyrlu á flugi. Vel gekk að skipta um duflið þrátt fyrir óhagstætt veður.
Aðeins 10 mínútur liðu frá því að
léttbáturinn fór með nýja duflið frá varðskipinu, þar til báturinn kom til
baka með gamla duflið. Hlustað var eftir sendingum þess og virkaði
allt eins og það átti að gera. Meðan á þessu stóð var sem fyrr segir óhagstætt veður, austan 20-30 hnútar, mikil rigning og 2-3 metra ölduhæð.
Tveimur dögum síðar var siglt að Seley sem er um 2,5 sjómílur frá mynni Reyðarfjarðar. Þar var skipt um stefnunema í sjálfvirkri veðurstöð við vitann í Seley. Veðurstöðin er rekin af Siglingastofnun.
Þokkalegar
aðstæður voru á staðnum og fóru fjórir menn á léttbát frá varðskipinu og
voru þeir komnir til baka rétt um klukkustund síðar, höfðu þá lokið við að skipta um nemann. Var þá haft var samband við starfsmenn Siglingastofnunar
sem staðfestu að vindstefna væri nú rétt frá stöðinni en rangar upplýsingar
höfðu borist í langan tíma.
Ýmsar æfingar og þjálfanir fóru fram í ferð skipsins og má þar nefna nætur- og dagæfingar með þyrlum Landhelgisgæslunnar þar sem m.a. gerðar voru
hífingar af skipi, úr björgunarbát og sjó, einnig þar sem þyrla tekur
eldsneyti á flugi, verkleg æfing í „skipið yfirgefið“ auk reykköfunar-
og slökkviæfingar sem fór fram um borð í bát sem var við bryggju á
Eskifirði. Í ferðinni notuðu kafarar einnig tækifærið til æfinga m.a. á
Aðalvík og í Stórhólma Reyðarfirði.
Þetta er aðeins brot af verkefnum Ægis, að sögn Landhelgisgæslunnar og má sjá að verkefni varðskipsmanna
eru afar fjölbreytt og birtast í hinum ýmsu myndum.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Tundurdufl gert óvirkt
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Tilkynnt um tundurdufl
- Miðvikudagur, 19. ágúst 2009, Innlent Bandarískt herskip fundið á botni Faxaflóa?
- Sunnudagur, 19. apríl 2009, Innlent Skútan fundin - 3 handteknir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































