Aukinn skilningur á stöðu mála á Íslandi
Bygging Evrópuráðsins í Strassborg. mbl.is/GSH
Vaxandi skilnings gætir meðal annarra þjóða á aðstæðum á Íslandi og stöðu mála hvað varðar samningaviðræður íslenskra stjórnvalda við bresk og hollensk stjórnvöld í Icesave-deilunni.
Þetta kom fram á fundum íslenskrar þingnefndar, sem sótti fund Evrópuþingsins sem fram fór í Strassborg, með þingmönnum frá Norðurlöndunum og Þýsklandi, að því er segir í tilkynningu.
„Fundur Evrópuráðsþingsins fór fram dagana 25.-29. janúar í Strassborg. Fundinn sóttu fyrir hönd Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins Lilja Mósesdóttir formaður, Steinunn Valdís Óskarsdóttir varaformaður og Birkir Jón Jónsson.
Á meðan á Evrópuráðsþinginu stóð hitti þingmannasendinefnd Íslands þingmenn frá Norðurlöndunum og Þýskalandi á tvíhliða fundunum. Tilefnið var að gera grein fyrir stöðu mála á Íslandi eftir að forseti Íslands synjaði lögum um ríkisábyrgð lána frá Bretlandi og Hollandi til að borga innstæðueigendum Landsbankans í löndunum tveimur staðfestingar.
Á fundunum var undirstrikað að íslensk stjórnvöld muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar. Hins vegar var bent á að samningarnir, einkum lánakjörin, þættu ekki taka nægilegt tillit til svokallaðra Brussel-viðmiða sem sett voru fram þegar Frakkar fóru með formennsku í Evrópusambandinu. Viðmiðin kváðu á um að við gerð samninganna skyldi tekið tillit til þeirra fordæmalausu aðstæðna sem ríktu á Íslandi.
Á fundinum var einnig gerð grein fyrir þeirri efnahagsáætlun sem íslensk stjórnvöld framfylgja vegna lánanna frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum. Undirstrikað var að lánin frá Norðurlöndunum færu ekki í að borga skuldir heldur til að styrkja gjaldeyrisforða landsins. Markmið lántökunnar væri að koma í veg fyrir frekari gengislækkun krónunnar þegar gjaldeyrishöftum verður aflétt. Norrænu þingmennirnir voru jafnframt upplýstir um tafir á endurskoðun AGS á efnahagsáætluninni.
Á fundunum gætti vaxandi skilnings á aðstæðum á Íslandi og stöðu mála hvað varðar samningaviðræður við bresk og hollensk stjórnvöld. Undantekningalaust var spurt hvað viðkomandi þingmannasendinefnd gæti gert fyrir Ísland sem sýndi aukinn vilja til að leggja Íslandi meira lið,“ segir í tilkynningunni.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 12. janúar 2010, Innlent Engar viðræður um nýtt Icesave-samkomulag
- Föstudagur, 1. maí 2009, Innlent Önnur lögmál á landsbyggðinni
- Sunnudagur, 20. febrúar 2011, Innlent Hollensk stjórnvöld: Samningur liggur fyrir
- Sunnudagur, 20. febrúar 2011, Innlent Bresk stjórnvöld bíða
- Mánudagur, 21. desember 2009, Innlent Icesave-samningur hvorki skýr né réttláttur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































