Boðar frumvarp um atvinnuvegaráðuneyti

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gerir sér vonir um að fljótlega verði lagt fram frumvarp á Alþingi um eitt atvinnuvegaráðuneyti, sem verði að lögum á vorþinginu.

Jóhanna sagði í svari við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur Samþylkingunni á Alþingi í dag að enginn bilbugur væri á ríkisstjórninni í þessu efni. Það væri kirfilega neglt niður í stjórnarsáttmálanum „og það sem er í stjórnarsáttmálanum hefur auðvitað ríkisstjórnin skyldur til þess að framkvæma. Báðir flokkarnir,“ sagði Jóhanna.

Hún sagðist hafa hlustað á sjónarmið Vinstri grænna um að farið verði hægar í sakirnar varðandi stofnun atvinnuvegaráðuneytis. Sagði hún að unnið væri af fullum krafti að undirbúningi breytinganna í forsætisráðuneytinu og smíði frumvarps sé langt á veg komin.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »
Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Veita Hvít-Rússum aðstoð

Rauði krossinn aðstoðar fólk í Hvíta-Rússlandi
14:50 Rauði kross Íslands hefur sent neyðarstyrk sem nemur tveimur milljónum króna til aðstoðar fórnarlömbum kuldabylgjunnar í Hvíta-Rússlandi en frost í landinu hefur farið niður fyrir þrjátíu gráður á síðustu vikum. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Áfallin staða A-deildar í plús

Fjármálaráðuneytið.
14:44 Áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, nam í árslok 2010 tæpum 4,2 milljörðum króna eða 2,5% af eignum. Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu og Fjársýslu ríkisins. Meira »

Er hóflega bjartsýnn

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er nú staddur í Bretlandi.
14:42 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra fór yfir stöðuna í makríldeilunni með sjávarútvegsráðherra Bretlands á fundi í Lúndunum í gær. „Ég skynjaði alveg sama áhuga á því að ná samkomulagi eins ég hef gert í Brussel og víðar. En að sama skapi þá viðurkenna menn það að þetta er dálítið flókið og ber mikið í milli.“ Meira »

„Engin minnihlutastjórn“

Kópavogur
14:30 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs hefur hug á að lækka fasteignagjöld í bænum. Fara á í söluátak á lóðum, en tugir lausra byggingalóða eru óbyggðar. Um 44% þeirra sem kusu í síðustu sveitarstjórnarkosningum standa á bak við nýja meirihlutann. Meira »

Kjarval lækkar vöruverð

Verð á léttmjólk hefur lækkað um 11%
14:03 Kjarval hafa lækkað vöruverð í verslunum keðjunnar á Suðurlandi, þ.e. á Hellu, Hvolsvelli, Vík, Kirkjubæjarklaustri, Þorlákshöfn og í Vestmannaeyjum um 5-25%. Greint er frá þessu á dfs. Meira »

Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt

Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði.
14:30 „Það er skelfilegt að búa við þetta árið 2012,“ segir Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði, en flutningabíll frá fyrirtækinu sat fastur á Ódrjúgshálsi í alla nótt vegna erfiðrar færðar. Hann átti að vera kominn til Patreksfjarðar í morgun, en var enn ekki kominn kl. 14 í dag. Meira »

ESB og Noregur taki sér 90% makrílkvótans

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, ásamt Mariu Damanaki, yfirmanni sjávarútvegsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
14:26 „Það er því að okkar áliti tímabært að senda Íslandi mjög sterk pólitísk skilaboð í aðdraganda næstu viðræðna í Reykjavík þannig að Íslendingar komi að borðinu með raunhæft samningsumboð.“ Meira »

Fresta innheimtu hesthúsaskatts

Hestamenn í Reykjavík eru óánægðir með fasteignaskattinn.
14:00 Borgarlögmaður hefur beint þeim tilmælum til fjármálaskrifstofu borgarinnar að hún fresti gjalddaga fasteignaskatts á hesthús í Reykjavík meðan beðið er viðbragða efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við erindi sem borgin sendi nefndinni. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SVEITASETRIN KJÓS OG GRÍMSÁ
Hentugt fyrir hópa. Nánari upplýsingar: Björn Þór, s. 680 6008, www.hreggnasi.i...
Queen size rúm úr Rekkjunni
Hef til sölu um 2 ára rúm frá Rekkjunni. 153*203. Sér ekki á rúminu. Verð 80.000...
Vantar íbúðir í Rvk
Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna vantar 3-4 herb. íbúðir í Rvk. Íbúðirna...
Sófasett og sófaborð
Fallegt og þægilegt rautt sófasett, 3 x 2. Settið er í góðu ásigkomulagi. Fæst ...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Húsnæði óskast

Húsnæði óskast til kaups eða leigu Rót...
Starfsmenn á reykjavíkurflugvelli
Akstur
ISAVIA OHF ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA ÖFLUGA ...
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...