Yfir 40% hafa tekið á sig kjaraskerðingu
Yfir 40% hafa orðið fyrir kjaraskerðingu frá því í október 2009, samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Alþýðusamband Íslands í desember. 20,5% hafa orðið fyrir því að laun hafa verið skert án breytinga á starfshlutfalli. Hjá 13,6% hefur starfshlutfall verið skert og ríflega 10% hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu á launakjörum.
Þetta þýðir að 44,4% fólks í launaðri vinnu hefur lent í kjaraskerðingu frá hruninu í október 2008, að því er segir á vef ASÍ.
Kjaraskerðingin er meiri hjá körlum en konum og eins er skerðingin meiri hjá íbúum á höfuðborgarsvæðinu heldur en landsbyggðinni. Elsti aldurshópurinn 55-75 ára hefur frekar orðið fyrir kjaraskerðingu en yngri hóparnir.
„Þegar hópurinn, sem segist ekki hafa orðið fyrir neins konar skerðingu í sinni vinnu, var spurður hvort hann teldi líklegt eða ólíklegt að laun viðkomandi yrðu lækkuð á næstu mánuðum svöruðu 81,5% því að það væri ólíklegt.
Þegar sami hópur var spurður hvort hann teldi líklegt að starfshlutfall yrði lækkað á næstu mánuðum svöruðu 87% spurningunni neitandi.
Það er því greinilegt að óttinn við skerðingu á vinnutíma eða launakjörum fer minnkandi. Hins vegar er óttinn við atvinnuleysi enn til staðar í ríkum mæli. 25,3% þeirra sem er í launaðri vinnu óttast að missa atvinnuna.
Til samanburðar má geta þess að í árslok 2006 óttuðust 8,3% fólks að missa vinnuna. Það eru einkum karlar, íbúar á höfuðborgarsvæðinu og láglaunafólk sem óttast atvinnumissi umfram aðra hópa," segir á vef ASÍ.
Capacent-Gallup gerði könnunina fyrir Alþýðusamband Íslands 14.-28.
desember 2009.Um net- og símakönnun var að ræða.Úrtakið var 1184 manns,
18-75 ára, af öllu landinu.Svarhlutfall var 60,8%.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 31. ágúst 2009, Innlent Þriðjungur launafólks orðið fyrir skerðingu
- Mánudagur, 12. janúar 2009, Innlent Laun lækkuð hjá 14%
- Þriðjudagur, 2. febrúar 2010, Innlent Færri fara í atvinnuleit til útlanda
- Mánudagur, 19. janúar 2009, Innlent Fjórðungur myndi leita sér að vinnu erlendis
- Mánudagur, 23. nóvember 2009, Innlent 40% hafa mátt þola skerðingu á kjörum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































