Mjótt á mununum í Hafnarfirði

Rósa Guðbjartsdóttir sækist eftir fyrsta sætinu.
Rósa Guðbjartsdóttir sækist eftir fyrsta sætinu. mbl.is

„Það er augljóslega mjög mjótt á mununum og úrslit ráðast ekki fyrr en síðustu atkvæði hafa verið talin,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði. 

Ekki munar nema tíu atkvæðum á Rósu og Valdimar Svavarssyni í baráttunni um fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Von er á næstu tölum eftir um það bil hálftíma og bíður Rósa spennt eftir þeim.

Ljóst er að mikil endurnýjun verður á lista sjálfstæðismanna, enda Rósa sú eina af sitjandi bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks sem gefur kost á sér áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert