Átti rétt á að vera viðstaddur
Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu, að blaðamaður á Morgunblaðinu hafi átt rétt á að vera viðstaddur þegar útgefandi blaðsins opnaði tölvupósta, sem blaðamaðurinn sendi til blaðamanns á DV í september á síðasta ári.
Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins, sagði við mbl.is, að með úrskurðinum sé staðfest, að heimilt hafi verið að opna umrædda tölvupósta.
Blaðamanninum var sagt upp í lok september í hópuppsögn. Af hálfu Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, kom fram að í kjölfarið hafi Óskar Magnússon fengið upplýsingar um að maðurinn kynni að hafa sent DV trúnaðarupplýsingar um rekstur Morgunblaðsins. Því hefðu þrír tölvupóstar, sem blaðamaðurinn sendi úr vinnunetfangi sínu hjá Morgunblaðinu til DV, verið opnaðir.
Fram kom hjá blaðamanninum, að gögn, sem hann bauðst til að senda blaðamanni DV, voru aldrei send.
Í niðurstöðu Persónuverndar segir, að forsvarsmanni Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, hafi borið að gefa blaðamanninum kost á að vera viðstaddur skoðun á tölvupósti hans. Með því að gera það ekki hafi verið brotið gegn reglum um rafræna vöktun og samsvarandi innanhúsreglum Árvakurs. Hafi slík framkvæmd við skoðun umræddra tölvupóstskeyta ekki samræmst ákvæðum laga um sanngjarna vinnslu enda hafi blaðamanninum hvorki verið gerð grein fyrir væntanlegri skoðun né verið gefinn kostur á að vera viðstaddur hana.
Þá hafi ekki verið sýnt fram á, að hagsmunir Árvakurs hafi verið það brýnir að ekki hafi verið ráðrúm til að gefa blaðamanninum kost á að vera viðstaddur.
Í niðurstöðunni segir einnig, að mikilvægt sé starfsmenn fjölmiðla geti tryggt vernd heimildarmanna sinna og haldið trúnað við viðsemjendur sína í ljósi hlutverks þeirra í upplýstu samfélagi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. september 2009, Innlent Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Meint trúnaðarbrot til athugunar
- Fimmtudagur, 11. júní 2009, Innlent Blaðamaður dæmdur fyrir meiðyrði
- Fimmtudagur, 18. júní 2009, Innlent Dæmdur á ný fyrir meiðyrði
- Föstudagur, 6. nóvember 2009, Innlent Segir frétt DV fjarri raunveruleikanum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































